Fær alveg sérstakt ánægjubros frá konunni

G.  Pétur Matthíasson, upplýsinga­fulltrúi Vega­gerðarinnar, er ástríðu­kokkur og mikill áhuga­maður um allt sem viðkemur mat og matargerð. Hann ræktar sitt eigið krydd, sultar sín eigin rifsber og reynir yfirleitt að búa allan mat til frá grunni. Hann er þeirrar skoðunar að hollast sé að borða allt – bara í hófi – sérstakt hollustu­fæði sé ekki málið.

„Þegar maður flytur að heiman 16 ára og býr við rýran kost í nokkur ár þá vaknar hjá manni áhugi að gera betur þegar maður loks kemst í sæmilega aðstöðu til þess. Þannig að áhuginn á elda­mennskunni kviknaði ekki fyrr en eftir að elda­mennskan hafði verið – eigum við að segja – lífs­nauðsyn­legur þáttur í lífi manns. Í þá daga var ekki mikið um skyndi­bita auk þess sem fjárráðin hefðu ekki leyft slíkan munað nema örsjaldan.“

Hversu langan tíma tók það fyrir áhugann að verða að ástríðu?

Góðir hlutir gerast hægt. Erfitt að segja nákvæmlega til um það. Hluti af því var sennilega meðfædd níska annars vegar og leti hins vegar sem leiddi til þess að maður fór að nýta bæði afganga og það sem til var í skápunum þann daginn. Af því að maður nennti ekki að fara út í búð. Það reynir á útsjónarsemina að búa til mat úr því sem til er. Það er nú til heil sjónvarpsþáttaröð hjá BBC um þetta sem gaman er að horfa á. En ég renndi yfirleitt í gegnum nokkrar uppskriftir með því aðal­hráefni sem ég átti til og reyndi svo að sjá hvað annað í skápunum gæti átt vel við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár