Skylda borgara til að aðstoða á hættustundu verið í lögum frá 1962

Ný reglu­gerð dóms­mála­ráð­herra skýrir skil­yrðin fyrir því hvenær borg­ara­leg skylda manna til að aðstoða í hjálp­ar­liði almanna­varna án end­ur­gjalds tekur gildi. Sú skylda er nú við lýði þar sem neyð­ar­stigi almanna­varna hefur verið lýst yfir.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Ráðherra setti reglu­gerð þar sem borg­ara­leg skylda til að aðstoða er tengd neyð­ar­stigi almanna­varna. Mynd: xd.is

Borg­ara­leg skylda til að hjálpa á hættu­stundu hefur verið í lögum frá 1962 hið minnsta. Ný reglu­gerð Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra, sem tengir slíka skyldu við neyð­ar­stig almanna­varna, felur þannig ekki í sér nein nýmæli um getu stjórn­valda til þess að krefja fólk um að gegna starfi í hjálp­ar­liði almanna­varna án end­ur­gjalds.

Hjálp­ar­lið almanna­varna aðstoðar við eld­varnir, björgun og sjúkra­flutn­inga, ruðn­ings­starf, hjálp­ar­starf vegna tjóns af völdum geisla­virkni, sýkla eða eit­ur­efna, lög­gæslu, fjar­skipta­þjón­ustu og félags­legt hjálp­ar­starf, að því fram kemur í reglu­gerð­inni.

Lög um almanna­varnir voru sam­þykkt árið 2008 í tíð Björns Bjarna­sonar sem dóms­mála­ráð­herra. Við sam­þykkt lag­anna féllu úr gildi fyrri lög sem sett höfðu verið árið 1962. Í þeim var um sams konar borg­ara­lega skyldu að ræða til að aðstoða á hættu­stundu.

Reglu­gerð sem Áslaug Arna setti á þriðju­dag hefur vakið athygli, en í henni er ekki talað um „hættu­stundu“ eins og í lög­unum. Ákvæðið er þess í stað tengt neyð­ar­stigi almanna­varna sem hefur verið í gildi frá 6. mars síð­ast­liðnum. Heimild er í lög­unum til að setja reglu­gerð­ina um starfs­skyldu. „Skal að því stefnt að starfs­kvöð komi sem rétt­lát­ast niður á borg­ar­ana,“ segir í lög­unum.

„Á neyð­ar­stigi almanna­varna er það borg­ara­leg skylda manna sem eru á aldr­inum 18–65 ára að gegna, án end­ur­gjalds, starfi í hjálp­ar­liði almanna­varna í umdæmi þar sem þeir dvelj­ast sam­kvæmt fyr­ir­mælum er lög­reglu­stjóri gefur, að fengnum til­lögum almanna­varna­nefndar eða rík­is­lög­reglu­stjóra,“ segir í nýju reglu­gerð­inni. „Kveðja má þá sem eru á aldr­inum 16–18 ára eða eldri en 65 ára til starfs skv. 1. mgr., ef þeir óska þess sjálfir. Þeim sem kvaddir hafa verið til starfs skv. 1. mgr. ber að koma til lækn­is­skoð­unar, ef nauð­syn­legt þykir. Enginn má á neinn hátt tálma því að maður gegni starfi sem hann hefur verið kvaddur til í þágu almanna­varna.“

Lög­reglu­stjóri skipar í hjálp­ar­lið, en ákvörðun hans má ekki skjóta til dóms­mála­ráð­herra þegar neyð­ar­á­stand ríkir. Þá má sá sem kvaddur er til aðstoðar ekki fara úr lög­sagn­ar­um­dæmi án sam­þykkis lög­reglu­stjóra. Loks hefur rík­is­lög­reglu­stjóri ákvörð­un­ar­vald um flutn­ing þeirra sem kvaddir eru til taf­ar­lausrar aðstoðar.

Engin ákvæði eru um við­ur­lög við því að skor­ast undan því að gegna starf­inu, hvorki í lög­unum né reglu­gerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár