Hörð kosningabarátta framundan í Danmörku

Eftir átján daga, eða 18. júní, ganga Danir til kosninga. Helle Thorning-Schmidt forsætis­ráðherra tilkynnti þetta síðastliðinn miðvikudag. Framundan er því stutt kosninga­barátta og allt bendir til að hún verði mjög hörð þar sem barist verður um hvert atkvæði. Samkvæmt nýjustu skoðana­könnunum nýtur stjórnar­andstaðan,bláa blokkin svokallaða, ívið meira fylgis en rauða blokkin, stjórnar­flokkarnir og stuðnings­flokkar stjórnarinnar. Munurinn er aðeins um þrjú prósentu­stig, en sérstaka athygli vekur að nær fjórðungur kjósenda er óákveðinn og það skiptir því miklu á hvora sveifina sá hópur leggst.

Bláa blokkin - rauða blokkin

Hans Engell, fyrr­verandi formaður Danska Íhalds­flokksins sagði í umræðu­þætti í sjón­varpinu fyrir tveimur dögum að hér í Danmörku væru eiginlega bara miðju­flokkar, þótt þeir teldu sig tilheyra annarri hvorri blokkinni, þeirri bláu eða rauðu. Flokkarnir væru sammála um flest sem máli skipti en deildu um smáatriðin. Það væri ágætt fyrir­komulag!


Bláa blokkin svonefnda (hægri miðja) samanstendur af Venstre, Íhalds­flokknum, Danska Þjóðar­flokknum, Frjáls­lynda Banda­laginu og Kristilegum demó­krötum (sem nú eiga ekki fulltrúa á þingi).


Rauða­blokkin (vinstri miðja) samanstendur af Sósíal­demókrötum, De Radikale Venstre, Sósíalíska þjóðar­flokknum, Einingar­listanum (sem er utan stjórnar, en mjög áhrifa­mikill) og (væntanlega) hinum nýja flokki Alternativet. Í Danmörku er löng hefð fyrir minnihluta­stjórnum sem njóta stuðnings flokka utan stjórnarinnar.

Helle Thorning-Schmidt
Helle Thorning-Schmidt

Forsætisráðherrann fór vel af stað en Lars Løkke illa


Hér í Danmörku þykir það skipta miklu máli, um fram­haldið, hvernig leiðtogar flokkanna standa sig í upphafi kosninga­baráttunnar. Kannanir fjölmiðla sýndu að Helle Thorning-Schmidt forsætis­ráðherra þótti standa sig mun betur en Lars Løkke Rasmussen leiðtogi Venstre. Sama dag og boðað var til kosninga hélt Lars Løkke fréttamanna­fund til að kynna helstu stefnumál flokksins. Hann lagði áherslu á að Venstre hefði að leiðar­ljósi að það væri eftirsóknar­vert að vinna og þeir sem það gera eigi að bera meira úr býtum en hinir sem lifa á atvinnu­leysis­bótum (hér kallaðir dagpeningar) eða öðrum framfærslu­lífeyri. Máli sínu til stuðnings nefndi Lars Løkke að hann hefði fyrir skömmu heimsótt fyrirtæki í nágrenni Kaupmanna­hafnar og þar hefði hann frétt um mann sem sagt hefði upp vinnunni af því að hann fengi nánast jafnmikið borgað í framfærslu­lífeyri og næmi laununum fyrir fulla vinnu. Þegar spurt var hver þessi maður væri og hvaða starf hann hefði haft með höndum vafðist Lars Løkke tunga um tönn og svaraði eitthvað á þá leið að sér hefði einfald­lega verið sagt þetta. Þetta þótti frétta­mönnum ekki sérlega greina­gott svar og gengu á flokks­formanninn og vildu vita nánar um þennan mann. Svör við þeim spurningum fengust ekki. Þessu gerðu fjöl­miðlarnir sér mat úr og voru fljótir að rifja upp ýmis fyrri ummæli Lars Løkke. "Þetta var ekki vel heppnað upphafs­atriði kosninga­baráttunnar" sagði stjórnmála­skýrandi Berlingske. Daginn eftir ræddi framkvæmda­stjóri umrædds fyrir­tækis við frétta­menn og sagðist hafa sagt Lars Løkke þessa sögu en sagði jafnframt að maðurinn (sá sem sagði upp vinnunni ) hefði sagt sér þetta. Frétta­menn voru þó engu nær um sannleiks­gildi frásagnarinnar og áttu erfitt með að átta sig á útreikningunum.

Ólík staða formanna Sósíaldemókrata og Venstre

Haldi stjórnin meirihluta sínum (með stuðningi annarra flokka rauðu blokkarinnar) er sjálf­gefið að Helle Thorning-Schmidt sitji áfram í forsætis­ráðuneytinu. Ef bláa blokkin verður í meirihluta eftir kosningar verður það Lars Løkke Rasmussen sem sest í stól forsætis­ráðherra. Staða þessara tveggja formanna innan eigin flokks er nokkuð ólík. Staða Helle Thorning innan flokks sósíal­demókrata er mjög sterk um þessar mundir og innan flokksins ríkir ekki valda­barátta. Vara­formaður flokksins er Frank Jensen yfir­borgar­stjóri í Kaupmanna­höfn sem aðspurður sagði pistla­skrifara að hann væri ekki á leið í landsmála­pólitíkina. Mette Frederiksen dómsmála­ráðherra hefur oft verið kölluð krónprinessa flokksins en hún hefur iðulega svarað því til að Helle Thorning, njóti fulls trausts flokks­manna. Sama gildir um dönsku þjóðina, hún treystir Helle Thorning best allra flokksleiðstoga.


Hjá Venstre er staðan önnur. Þótt allt sé slétt og fellt á yfir­borðinu ríkir ekki einhugur innan flokksins um Lars Løkke. Hann er jafnframt sá flokks­formaður sem minnsts trausts nýtur meðal dönsku þjóðarinnar. Fyrir nokkrum mánuðum gerði vara­formaðurinn Kristian Jensen tilraun til að velta Lars Løkke úr sessi. Á síðustu stundu, í kjallara­herbergi á fundar­staðnum, gerðu þeir samkomulag og ekki kom til þess að kosið yrði milli þeirra tveggja. Síðar kom í ljós að Lars Løkke hafði hótað Kristian Jensen að ef hann léti til skarar skríða gegn sér myndi Løkke armurinn í flokknum bjóða Sören Gade, fyrr­verandi varnarmála­ráðherra fram til formanns, en hann dró sig út úr pólitík fyrir nokkrum árum og hyggur nú á endurkomu. Milli þeirra Lars Løkkes formanns Venstre og vara­formannsins Kristians Jensens ríkir semsé ekki vinátta. "Ég myndi ekki hringja í Kristian til að bjóða með mér í bíó og sama gildir örugglega um hann" sagði Lars Løkke nýlega í viðtali.


danske folketinget þingið danmörk
danske fol­ket­inget þingið dan­mörk

Margir nýir flokksformenn

Á danska þinginu sitja nú fulltrúar níu flokka. Formenn fimm þeirra hafa aldrei leitt flokk sinn í kosningum. Sumir úr þessum hópi eiga erfitt verk fyrir höndum.


Fyrst skal nefna Søren Pape, formann Det Konservative Folkeparti, Íhalds­flokksins. Hann situr ekki á þingi en hafði starfað fyrir flokkinn í sveita­stjórnar­málum. Íhalds­flokkurinn er í dag einungis skugginn af sjálfum sér, smáflokkur með innan við 5 prósenta fylgi. Miðað við kannanir tapar hann fylgi frá síðustu kosningum sem voru þær lökustu í sögu flokksins. Íhalds­flokkurinn var í ríkis­stjórnar­samstarfi með Venstre á síðasta kjör­tímabili.


Morten Östergaard er nýr formaður De Radikale Venstre eða Radikale eins og flokkurinn er oftast kallaður. Radikale eiga sæti í fráfar­andi ríkis­stjórn og fengu 9,5 prósenta fylgi í síðustu kosningum. Fyrr­verandi formaður flokksins Margrethe Vestager var talinn eiga stærstan þátt í velgengni flokksins þá en miðað við kannanir tapar flokkurinn næstum helmingi fylgisins frá 2011 í komandi kosningum.


Sosialistisk Folkeparti, Sósíalíski þjóðar­flokkurinn hefur líka fengið nýjan formann, Piu Olsen Dyhr. Flokkurinn hefur gengið í gegnum miklar sviptingar á núverandi kjör­tímabili, Pia Olsen er þriðji flokks­formaðurinn frá 2011. SF, eins og flokkurinn er kallaður, dró sig út úr ríkis­stjórn snemma árs 2014 vegna ágrein­ings varðandi sölu á hlut ríkisins í orku­fyrirtækinu DONG. Tveir fyrr­verandi ráðherrar flokksins sögðu sig þá úr flokknum og gengu til liðs við aðra flokka á þinginu. Flokknum er spáð miklu fylgis­tapi í komandi kosningum.

Danski þjóðarflokkurinn í stórsókn

Kristian Thulesen Dahl tók við formennsku í Dansk Folkeparti, Danska Þjóðar­flokknum, í ágúst 2012 en Pia Kjærsgaard hafði gegnt formennskunni frá stofnun flokksins 1995. Kristian Thulesen Dahl nýtur mikils persónu­fylgis og er flokknum spáð mikilli fylgis­aukningu í komandi kosningum. Flokkurinn hefur aldrei átt sæti í ríkis­stjórn en var hinsvegar stuðnings­flokkur síðustu ríkis­stjórnar og mjög áhrifa­mikill. Flokks­formaðurinn hefur sagt að hann stefni ekki að ríkis­stjórnar­þátttöku á komandi kjör­tímabili. Danski þjóðar­flokkurinn hefur mjög eindregna afstöðu í málefnum innflytjenda, vill takmarka fjölda þeirra mjög, er gagn­rýninn á Evrópu­sambandið og lætur sér annt um málefni tekju­lægri þegna þjóð­félagsins.

Alternativet - Valkosturinn

Loks er það nýi flokkurinn Alternativet, Valkosturinn. Stofnandi hans og formaður Uffe Elbæk varð þingmaður Radikale Venstre og menningar­mála­ráðherra eftir kosningarnar 2011 en sagði sig úr flokknum haustið 2012 og hefur síðan verið það sem kallað er lösgænger, lausa­göngumaður. Hann stofnaði Alternativet árið 2013. Flokkurinn er kallaður "jókerinn" í danskri pólitík því gengi hans getur ráðið úrslitum um hvort núverandi ríkis­stjórn heldur velli. Til að fá þingmenn kjörna þarf tveggja prósent fylgi. Lengi vel benti fátt til að Alternativet næði þessum mörkum, ef flokkurinn nær því ekki falla atkvæði honum greidd dauð. Þau atkvæði gætu ráðið úrslitum um hvort stjórnin stendur eða fellur því öruggt er talið að flokkurinn standi með rauðu blokkinni, núverandi stjórnar­flokkum. Þess vegna hafa fjöl­miðlar velt fyrir sér hvort stjórnar­flokkarnir reyni að sjá til þess að Alternativet nái nógu miklu fylgi til að komast yfir tveggja prósenta múrinn. Flokkurinn leggur mikla áherslu á umhverfismál.

Um hvað er kosið?

Þessa spurningu bar bandarískur frétta­maður upp eftir að hann hafði hlustað á talsmenn flokkanna sem eiga fulltrúa á þingi útskýra stefnu­málin. Von að spurt sé. Fyrir utan­aðkomandi virðist nefnilega sem hér sé ætíð verið að kýta um áherslu­atriði fremur en bein stefnumál. Aðeins örfáir dagar eru nú liðnir síðan boðað var til kosninganna og því líklegt að ágrein­ingur um tiltekin mál eigi eftir að verða skýrari eftir því sem nær dregur kjördegi. Stefna flokkanna í málefnum innflytjenda verður örugglega meðal þess sem mikið verður rætt en margir landsmenn virðast aðhyllast skýrari línur í þeim efnum. Danski þjóðar­flokkurinn hefur haft skýra afstöðu, vill einfald­lega standa á bremsunni og takmarka mjög fjölda þeirra sem fá að setjast að í landinu. Allir viðurkenna þó að flóttamanna­vandinn sé gríðar­legur og þar verði allar þjóðir að sýna ábyrgð. Önnur mál, stefna í skatta­málum og opinberum útgjöldum eru gamlir kunningjar eins og einn stjórnmála­skýrandi orðaði það. Á umræðu­fundi í danska sjón­varpinu DR, voru þátt­takendur (stjórnmála­skýrendur) sammála um að kosningarnar snúist miklu fremur um menn en málefni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár