Tólf látin í flugslysi í Taívan - flugvél hrapaði í á í höfuðborginni

Minnst tólf eru látin eftir að farþega­flugvél hrapaði í á inn í Taípei, höfuðborg Taívan. Óttast er um afdrif farþega sem ekki hefur enn tekist að ná út úr braki vélarinnar en 58 átta farþegar voru í vélinni, samkvæmt frásögn breska ríkis­útvarpsins BBC. Unnið er að því hörðum höndum að flytja slasaða á sjúkrahús, en aðstæður á staðnum eru erfiðar. Vélin var á vegum flug­félagsins TransAsia Airways.

Aviation expert Chris Yates says the TransAsia flight appeared to be trying to avoid crashing into an apartment block http://t.co/lNOqLGgKml

— BBC World Service (@bbcworldservice) February 4, 2015

Myndband af því þegar flugvélin hrapaði sýnir hversu litlu munaði að hún hrapaði niður á umferðaræð í borginni, áður en hún steyptist í ána.

Fréttin verður uppfærð eftir því sem frekari stað­festar fregnir berast.

https://www.youtube.com/watch?v=0fWhYJNZt08

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár