Ekki vanhæf: „Ég vann aldrei náið með þeim“

Theódóra Þorsteins­dóttir, formaður bæjarráðs Kópavogs, segir fyrri störf sín hjá sölu­aðilum Norður­turns ekki hafa áhrif á hæfi sitt til að fjalla um kaup í honum. Bæjar­stjóri segir pólitíska andstæðinga spinna upp samsæris­kenningar.

Theódóra Þorsteins­dóttir, oddviti Bjartrar framtíðar í Kópavogi og formaður bæjarráðs, er hlynnt því að bæjar­skrifstofur Kópa­vogsbæjar flytji í Norður­turn Smára­lindar. Óeining er um málið í bæjar­stjórninni þar sem Sjálfstæðis­flokkur og Björt framtíð mynda meirihluta. Er forseti bæjar­stjórnar, Margrét Friðriks­dóttir úr Sjálfstæðis­flokki, á móti flutningunum og telur Sverrir Óskarsson úr Bjartri framtíð að skoða eigi fleiri möguleika áður en kaupin á húsnæðinu í Norður­turni ganga í gegn. 

Stundin ræddi við Theódóru um málið. Hún vísar til stjórnsýslu­úttektar frá 2011 þar sem bent er á óhagræði í núverandi húsnæði. Efla megi starfsemina með því að koma henni allri undir eitt þak. „Skrif­stofan er í þremur húsum á átta hæðum, með sjö kaffi­stofur og í 1000 fermetrum of stóru húsnæði. Þetta segir mér að hægt sé að gera betur,“ segir hún og bætir því við að ljóst sé að ef skrif­stofurnar yrðu áfram að Fannborg þyrfti að gera endur­bætur á húsnæðinu. Slíkt gæti kostað hátt í 500 milljónir króna. „Þá stöndum við frammi fyrir þeirri spurningu: á að laga húsið fyrir hálfan milljarð án þess að ráða bót á óhag­ræðinu eða eigum við að skoða eitthvert annað húsnæði?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár