Jarðhnetuforstjóri dæmdur í 28 ára fangelsi fyrir salmonellusmit

Fyrrum eigandi og forstjóri jarðhnetu­fyrir­tækisins Peanut Corporation of America, starfrækt í Georgíu-fylki í Banda­ríkjunum, hefur verið dæmdur til 28 ára fangelsis­vistar fyrir aðkomu sína að útbreiðslu salmonellu­smits sem varð níu manns að bana og veikti hundruð manna.

Forstjórinn fyrr­verandi heitir Steward Parnell og er 61 árs gamall. Árið 2014 voru hann og bróðir hans, Michael Parnell sem vann einnig hjá fyrir­tækinu, ákærðir fyrir að hafa vísvitandi sent salmonellu­sýktar jarð­hnetur í verslanir. Alls er vitað um 714 atvik þar sem fólk veiktist eftir að borða jarð­hnetur frá fyrir­tækinu, að því er greinir frá í frétt Reuters um málið. Málið kom upp árið 2009 og leiddi til einna yfirgripsmestu innkallana á matvæla­markaði í sögu Banda­ríkjanna.

Fyrir dómi voru bræðurnir sakaðir um að hafa vitað af salmonellu­sýkingunni um árabil en ekki aðhafst. Dómari í málinu dæmdi Michael Parnell í 20 ára fangelsi auk þess sem Mary Wilkerson, fyrrum gæða­eftirlits­stjóri verksmiðjunnar, fékk fimm ára dóm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár