Segir dánartíðni í nýrri bylgju geta orðið helmingi lægri

Ákvörðun Íslendinga um að setja elstu aldurs­hópana í forgangs­hópa fyrir bólu­setningar myndi draga úr dánar­tíðni nýrrar bylgju kórónu­veirunnar hérlendis, að mati hagfræðings.

Búast má við því að dánar­tíðni vegna COVID-19 verði að minnsta kosti helmingi lægri í nýrri bylgju faraldursins hérlendis, þar sem viðkvæmustu hóparnir gagnvart veirunni eru nú þegar bólu­settir. Þetta skrifar Eiríkur Ragnarsson hagfræðingur í grein sinni í nýjasta tölublaði Vísbendingar, sem kom út á föstu­daginn.

Samkvæmt Eiríki hefur bólu­setning verið með svipuðu móti hérlendis og í Þýska­landi, þar sem ný bylgja faraldursins hófst fyrir nokkrum vikum síðan. Bæði löndin hafi ákveðið að setja eldri borgara í forgang, en í Þýska­landi er búið að bólusetja um 80 prósent allra þeirra sem eru yfir áttrætt, en það eru um fimm milljónir einstaklinga.

Mikinn mun má sjá á þróun nýrra tilfella þeirra sem eru yfir áttrætt þar í landi, borið saman við aldurs­hópinn 65 til 79 ára. Á síðasta ári fylgdi smittíðni beggja aldurs­hópa svo til sömu þróun, en hún tók svo að breytast nokkrum eftir að bólu­setning elsta aldurs­hópsins hófst um síðustu áramót.

Síðan þá hefur smitum fækkað hraðar á meðal þeirra og haldist nokkuð stöðugur á síðustu vikum, þótt smitum á meðal þeirra sem eru á aldrinum 65 til 79 ára hafi aukist töluvert.

Eiríkur segir það mat þýskra sérfræðinga að núverandi bylgja verði verri en sú síðasta vegna tilkomu svokallaða breska afbrigðisins af veirunni. Þrátt fyrir það mætti ætla að helmingi færri myndu missa lífið í henni en ella, þar sem í kringum 70 prósent af öllum dauðsföllum vegna veirunnar hafi átt sér stað í hópi 80 ára og eldri, sem nú eru að miklu leyti bólu­settir.

Búast mætti við svipaðri tölfræði hérlendis, þ.e. að vænt mannfall í nýrri bylgju yrði helmingi minna en ef ekki hefði verið fyrir bólu­setningu og forgangs­röðun eldri borgara í henni, samkvæmt Eiríki.

Hægt er að gerast áskrifandi að Vísbendingu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár