Þeim sem gerst hafa sekir um kynferðisbrot verði neitað um starfsleyfi ökukennara

Lagt er til í nýjum drögum að breyt­ingu á reglu­gerð um öku­skír­teini að sett verði inn heim­ild til að neita þeim um starfs­leyfi öku­kenn­ara sem gerst hafa sekir um kyn­ferð­is­brot og að neita megi þeim um öku­skír­teini sem háðir eru notkun áfengis.

Lagt er til, í nýjum drögum að breyt­ingu á reglu­gerð um öku­skír­teini vegna til­komu nýrra umferð­ar­laga, að sett verði inn heim­ild til að neita þeim um starfs­leyfi öku­kenn­ara sem gerst hafa sekir um kyn­ferð­is­brot. Drögin eru komin í sam­ráðs­gátt stjórn­valda en umsagn­ar­frestur er til 24. jan­úar næst­kom­andi.

Ný umferð­ar­lög tóku gildi þann 1. jan­úar síð­ast­lið­inn. Í þeim eru marg­vís­legar breyt­ingar sem kalla á end­ur­skoðun reglu­gerða, sam­kvæmt sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu.

Neita megi þeim um ökuskírteini sem háðir eru notkun áfengis

Meðal þess sem breytt­ist eru ákvæði um öku­kennslu, æfinga­akstur og heil­brigð­is­skil­yrði fyrir öku­rétt­indi. Þá kveða nýju lögin á um að við end­ur­nýjun öku­rétt­inda eftir svipt­ingu skuli sækja sér­stakt nám­skeið hjá Sam­göngu­stofu. Sömu­leiðis að neita megi þeim um öku­skír­teini sem háðir eru notkun áfengis.

Jafn­framt er lagt til í nýju drög­unum að með umsókn um öku­skír­teini eftir svipt­ingu öku­réttar skuli fylgja stað­fest­ing þess að umsækj­andi hafi sótt nám­skeið í þeim til­vikum þegar öku­maður hefur verið sviptur öku­rétt­indum í annað sinn vegna akst­urs undir áhrifum áfengis eða ann­arra vímu­efna.

Forstjóri Samgöngustofu skipi trúnaðarlækni til fimm ára

Lagt er til að nám eftir svipt­ingu í annað sinn vegna akst­urs undir áhrifum verði sex bók­legar kennslu­stundir og að við­kom­andi skuli sitja öku­próf að nýju. Einnig er lagt til að tekið sé fram að bók­legt öku­nám megi fara fram raf­rænt.

Þá er lagt til að for­stjóri Sam­göngu­stofu skipi trún­að­ar­lækni til fimm ára sem ber ábyrgð á mati á akst­urs­hæfni. Þá er lagt til að stofn­un­inni verði heim­ilt að gera samn­ing við fleiri en einn lækni til að gegna starf­inu. Lagt er til að trún­að­ar­læknir hafi hreint saka­vott­orð, almennt lækn­inga­leyfi og víð­tæka þekk­ingu og reynslu í lækn­is­fræði.

Samkvæmt sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu gera ný umferð­ar­lög ekki ráð fyrir því að öku­kenn­arar skili inn virkni­vott­orði við umsókn um end­ur­nýjun leyfis. Því sé lagt til að öku­kenn­ari skuli þreyta próf í öku­kennslu, sé meira en ár liðið frá því að starfs­leyfi féll úr gildi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár