Þolinmæði er dygð hjá frumkvöðlum

Guðjón Már Guðjónsson, framkvæmda­stjóri og stofnandi Oz, segir mikinn kraft einkenna íslenskt frumkvöðla­umhverfi um þessar mundir. Eftir hrunið sé meiri virðing borin fyrir nýsköpun og frumkvöðlum en áður. Fjár­festar þurfi að muna það að þolinmæði er dygð þegar komi að frumkvöðlum og nýsköpun.

Spennandi tímar eru framundan hjá Oz sem vinnur nú að frekari land­vinningum, meðal annars í Suður-Ameríku og Austur-Evrópu. Um 20 starfs­menn Oz vinna í höfuð­stöðvum fyrir­tækisins við Skál­holtsstíg en Guðjón segir að Oz verði áfram íslenskt fyrirtæki og ætli sér að vera með hjartað í starfsemi sinni hér á landi áfram.

Kjarninn heldur áfram að fjalla um frumkvöðla og nýsköpunar­starf, í samvinnu við Kelduna og Arion banka og Startup Reykjavík viðskipta­hraðalinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár