Skólar opna á miðvikudag í Brussel og viðamiklar aðgerðir lögreglu halda áfram

Blaða­maður Kjarnans í Brussel segir fólk hafa hægt um sig. Miklar lögreglu­aðgerðir standa enn yfir í Brussel vegna hryðjuverka­ógnar.

Stefnt er að því að skólar verði opnaðir á ný í Brussel á miðvikudag, en viða­miklar aðgerðir lögreglu, vegna viðvarandi hryðju­ógnar, halda áfram næstu daga, að sögn breska ríkis­útvarpsins BBC. Forsætis­ráðherra Belgíu tilkynnti þetta undir kvöld. 

Alþjóða­skólinn í Brussel, ISB (International School of Brussels) verður þó áfram lokaður, samkvæmt upplýsingum á vef skólans.

Lestar­samgöngur í borginni hefjast einnig að nýju á miðvikudag. Skólar, háskólar og lestar­kerfi borgarinnar voru lokuð í dag vegna hættu á hryðju­verkum. Hæsta viðbúnaðar­stig verður áfram í gildi í borginni næstu vikuna, en brýnt er fyrir fólki að nú þurfi það að reyna að hefja daglegt líf á nýjan leik. Tilkynnt var fyrir skömmu að saka­dómari í Belgíu hafi ákveðið að ákæra fjórða manninn í tengslum við hryðjuverka­árásirnar í París, 13. nóvember, sem urðu 129 að bana. Frá þessu greinir breska ríkis­útvarpið BBC á vef sínum.

Maðurinn var hand­tekinn ásamt fimmtán öðrum í aðgerðum lögreglu í Brussel í gær. Hinum fimmtán hefur öllum verið sleppt úr haldi.

Af þeim fimm sem voru hand­teknir síðastliðna nótt hefur tveimur verið sleppt úr haldi, en þrír eru enn í fangelsi.

Hefur óneitanlega áhrif á daglegt líf

Hall­grímur Oddsson, frétta­ritari Kjarnans í Brussel, segir við Kjarnann að ástandið í Brussel sé svipað og um helgina. „Það er rólegra yfir öllu og vígbúnar löggur og hermenn sýnilegar. Fólk fylgdist vel með fréttum í gærkvöldi, þegar aðgerðir stóðu yfir á nokkrum stöðum í borginni, meðal annars í miðbænum.“ Hall­grímur segist ekki hafa á tilfinningunni að fólk sé hrætt, „en þetta hefur óneitanlega áhrif á daglegt líf, lestar­kerfið er lokað þótt nokkrar strætó­leiðir gangi enn og skólar á öllum skóla­stigum hafa verið lokaðir. Margir vinnu­staðir hafa hvatt starfs­fólk til að vinna heiman frá. Í pósti frá skólanum mínum voru nemendur beðnir um að vera á verði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár