Stórar virkjanir úti í Noregi vegna vatnsskorts

Skert raforku­framleiðsla vegna vatns­skorts blasir áfram við í mið- og suður­hluta Noregs ef himnarnir fara ekki að opnast almennilega. Í raun þarf úrkoma haustsins að vera óvenju­lega mikil til að bæta upp fyrir þurrkatíð sumarsins.

Blásjór í eðlilegu árferði að hausti. Lónið er nú hálftómt og rafmagnsframleiðslu í virkjununum verið hætt tímabundið.
Blásjór í eðli­legu árferði að hausti. Lónið er nú hálf­tómt og raf­magns­fram­leiðslu í virkj­un­unum verið hætt tíma­bundið. Mynd: Wikipedia

Sumarið í Noregi einkenndist af minni úrkomu í suður­hluta landsins en í meðalári. Þetta ástand kom í kjölfar vetrar þar sem snjóað hafði minna en að meðaltali. Þetta óvenju­lega árferði er stærsta ástæða þess að uppistöðulón vatnsafls­virkjana hafa verið rétt hálf full eða rúmlega það þetta haustið.

En skýring­anna er ef til vill að leita enn lengra aftur í tímann. Því á ákveðnum svæðum hefur t.d. snjóað mun minna í nokkur ár samfleytt en búast hefði mátt við miðað við árin á undan.

Nú eru ákveðnar blikur á lofti í úrkomunni. Því síðustu daga hefur rignt mikið, en þó á afmörkuðum svæðum, á þessum suðlægu slóðum í Noregi. Þegar hafa fallið um 70 mm af úrkomu í Telemark, svo dæmi sé tekið. Jarð­vegurinn var vissulega orðinn þurr svo að hann dregur í sig mikið af regn­vatninu en uppistöðu­lónin munu taka við rest ef fram fer sem horfir.

Þessu hafa Norðmenn í raun beðið eftir því haust­rigningarnar eru þekkt fyrirbæri og stundum geta þær verið ofsa­fengnar. Eitt úrhelli bjargar ekki öllu fyrir horn en það kemur sér sannarlega vel. Úrkoman þarf að vera dreifðari um árið, bæði sem snjór að vetri og rigning að sumri, svo uppistöðu­lónin fyllist. „Við viljum mikið af rigningu og mikið af snjó,“ hjá orku­veitunni í Austur-Telemark.

En það er ekki nóg að fá stað­bundna úrkomu eins og segja má að nú geisi. Til að öll uppistöðu­lónin njóti góðs af þarf að rigna á mun stærra svæði.

Otraveita, ein stærsta virkjun Noregs, nýtir vatn úr uppistöðu­lóninu Vatns­dalsvatni, Vatnedalsvatnet í Agder-fylki til vinnslunnar. Hún hefur undan­farið framleitt 25 prósent minna rafmagn en en vant er á þessum árstíma. Samdrátturinn skýrist af vatns­skorti.

Og nú vonast stjórn­endur virkjunarinnar eftir því að óvenjulegt árferði sé í hönd. Að það muni á skömmum tíma, áður en það fer að snjóa, rigna um 20-30 prósent meira en venjulega. Það gæti þýtt að lónið myndi fyllast.

Á öðrum svæðum er ástandið enn verra og dæmi eru um að nokkur af stærstu lónunum standi hálf tóm. Yfirborð Blásjós, lóns sem liggur milli fylkjanna Rogalands og Agder, fór niður í um 20 prósent fyrr á þessu ári. Ástandið hefur skánað og nú stendur það í 40-50 prósentum sem er þó verulega undir vatns­magni sem reikna má með að hausti.

Ekkert vatn rennur þessa dagana úr Blásjó og niður í gegnum virkjana­kerfið sem lóninu tengist. Til að safna í lónið þurfti að loka fyrir vatns­rennslið.

Norska orku­stofnunin hefur ekki reiknað út hversu mikið þarf að rigna svo að uppistöðu­lónin fyllist sem flest og rafmagns­framleiðsla farið á fullt stím aftur. Hún bendir á að vatns­skortur í lónunum sé ekki eina ástæða þess að rafmagns­verð í Noregi, sérstak­lega syðst í landinu, hefur hækkað mikið síðustu vikur og mánuði. Hækkunin skýrist ekki síst af stríðinu í Úkraínu og orku­krísunni sem átökin hafa valdið í Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár