Í Danmörku má ekki selja hnífa sem hægt er að opna með annarri hendi

Allir hafa heyrt Hauk Morthens syngja um hann Bjössa á mjólkur­bílnum sem ók eins og ljón, með aðra hönd á stýri (og steig bensínið í botn á fyrsta gíri). Engum sögum fer af því hvort Bjössi var með vasahníf en ef hann væri að aka um með brúsana, og vasahníf í Danmörku í dag væri vissara fyrir hann að vara sig, lögreglan myndi líklega taka af honum hnífinn og kæra kaup­manninn sem seldi honum hann.

Fyrir tveimur dögum var kveðinn upp dómur í bæjar­réttinum í Óðinsvéum. Þar var kaupmaður sem á og rekur litla verslun með ýmis konar vörur fyrir sport­veiðimenn sektaður um 100 þúsund krónur (tæpar 2 milljónir íslenskar krónur) fyrir að hafa í verslun sinni 44 ólöglega vasahnífa. Kaup­maðurinn, sem er gamall í hettunni, sagði fyrir réttinum að hann hefði selt svona hnífa í áratugi og kvaðst ekki vita hvað væri nú breytt.

Dómarinn sagðist fylgja lögum


Dómarinn sagði kaup­mann­inum að það gæti vel verið en lögin kvæðu ein­fald­lega á um að ólög­legt væri að selja hnífa sem hægt væri að opna með annarri hendi. Kaup­mað­ur­inn spurði hvort þetta væru ný lög en fékk þau svör að svo væri ekki. Þá spurði kaup­mað­ur­inn dóm­ar­ann hvort hann treysti sér til að opna einn af hníf­unum sem lágu á dóm­ara­borð­inu. Dómarinn sagði að það væri ekki til umræðu hér hversu leik­inn hann væri með slíkt áhald.

Lögin segi að ef nokkur möguleiki sé á að hægt sé að opna hníf með annarri hendi sé sá hnífur ólöglegur. Punktur og basta.

Samtök danskra veiði­manna hafa harðlega mótmælt þessum dómi og öðrum svipuðum sem féll fyrir skömmu. Í næstu viku verður svo dæmt í þriðja hnífa­málinu en sá kaupmaður sem þar á í hlut neitar að borga sekt (sem búið var að dæma hann í) fyrir að hafa 65 hnífa til sölu. Segist frekar sitja af sér í grjótinu en borga.

Stjórnmálamenn vilja breyta lögunum


Kosn­ingar nálg­ast hér í Danmörku og eins og títt er við slíkar aðstæður vilja fram­bjóð­endur gera ýmis­legt til að öðl­ast hylli kjós­enda. Danska rík­is­út­varpið, DR, ræddi við átta þing­menn í dag, þeir ætla allir í fram­boð og voru allir sam­mála um að þessi hnífalög (sem þeir settu sjálfir) væru alveg út í hött.

Það hefði aldrei verið ætlunin að koma í veg fyrir að fólk gæti gengið með vasahníf á sér. Þing­mennirnir lofuðu líka allir sem einn að þessum ólögum yrði breytt strax á næsta þingi, ef þeir fengju nokkru ráðið.

Dúkahnífar og fjölnotaverkfæri líka ólögleg


Nokkrar bygg­inga­vöru­versl­anir og stór­mark­aðir hafa þegar brugð­ist við og fjar­lægt hnífa úr hill­unum. Það gildir um alla hnífa sem nokkur minnsti mögu­leiki er að hægt sé að opna með annarri hendi. Undir þetta falla meðal ann­ars dúka­hnífar og hin svoköll­uðu fjöl­nota­verk­færi, þar sem hnífur er meðal áhalda.

Eigandi einnar bygginga­vöru­verslunar sagðist vera með 1500 dúkahnífa á lagernum. „Ég færi á hausinn ef ég fengi svipaða sekt og kaup­maðurinn sem var með 44 vasahnifa til sölu,“ sagði þessi kaupmaður. Ekki liggur ljóst fyrir hvort dúkahnifur er hnífur eða verkfæri í laganna skilningi.

Má selja til „viðurkenndra“ notenda


Lögin segja að hnífa, sem hægt sé að opna með annarri hendi, megi selja til við­ur­kenndra not­enda. Kaupmenn segja úti­lokað að meta hverjir séu við­ur­kenndir not­endur og þeir geti ekki krafið við­skipta­vini um slík sönn­un­ar­gögn og eng­inn viti hver þau ættu að vera.

Áður­nefndur kaupmaður ráðlagði frétta­manni sem við hann ræddi að ef hann ætti gamlan vasa- eða dúkahníf skyldi hann ekki henda honum. „Það er ekki víst að þú frétta­maðurinn verðir talinn viðurkenndur notandi,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár