Hlutfall fyrirtækja sem segjast skorta starfsfólk einungis einu sinni mælst hærra

Skýrar vísbendingar eru um spennu í íslenska þjóðar­búinu. Heimilin eru að eyða miklu meira í neyslu en reiknað var með og ferða­þjónustan tekið við sér hraðar. Atvinnu­leysi er hverfandi og víða er skortur á starfs­fólki.

Ferðamenn flykktust til landsins strax og takmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins var aflétt.
Ferða­menn flykkt­ust til lands­ins strax og tak­mörk­unum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins var aflétt. Mynd: Bára Huld Beck

Störfum á Íslandi fjölgaði hratt á öðrum ársfjórðungi og meðal­vinnu­stundum fjölgaði í fyrsta sinn frá árinu 2019. Heildar­vinnu­stundum fjölgaði um 9,1 prósent milli ára sem er mesta fjölgun frá upphafi vinnu­markaðs­könnunar Hagstofu Íslands.

Atvinnu­leysi hefur dregist skarpt saman samhliða auknum efnahagssumsvifum – það var 12,8 prósent í janúar í fyrra en 3,2 prósent í lok júlí – og hlutfall fyrir­tækja sem segjast skorta starfs­fólk hefur einungis einu sinni mælst hærra. Gert er ráð fyrir að atvinnu­leysi verði um 3,8 prósent að meðaltali í ár en þokist upp í liðlega fjögur prósent þegar líður á spátímann sem er það atvinnu­leysi sem talið er samræmast verð­stöðugleika.

Þetta kemur fram í nýjustu útgáfu ritsins Peningamál sem Seðla­banki Íslands birti í síðustu viku.

Þar segir að samkvæmt árstíðar­leiðréttum niður­stöðum sumar­könnunar Gallup töldu 54 prósent stjórn­enda fyrir­tækja skort vera á starfs­fólki. Í eina skiptið sem hlut­fallið hefur verið hærra töldu liðlega 60 prósent stjórn­enda fyrirtæki sitt eiga erfitt með að mæta óvæntri eftir­spurn. „NF-vísitalan, sem tekur saman fjölda vísbendinga um nýtingu framleiðslu­þátta, hækkaði því nokkuð milli fjórðunga og hefur ekki verið hærri síðan um mitt ár 2007. Skýrar vísbendingar eru því um að spenna sé tekin að myndast í þjóðar­búinu. Talið er að framleiðslu­spennan nái hámarki í um 1,5 prósent af framleiðslu­getu í ár sem er meiri spenna en gert var ráð fyrir í maíspá bankans.“

Heimilin að eyða miklu meira en Seðlabankinn reiknaði með

Spennan sem er að skapast er tilkomin vegna aukins hagvaxtar. ​​Seðla­banki Íslands býst nú við því að hag­vöxtur verði 5,9 pró­sent í ár, sem er 1,3 pró­sentu­stigi meiri hag­vöxtur en bank­inn spáði í maí. Breyt­ingin er að mestu til­komin vegna þess að heim­ili lands­ins hafa eytt meira í neyslu síðan þá en Seðla­bank­inn hafði reiknað með. Neyslu­út­gjöld heim­ila jukust um 8,8 pró­sent á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins, en Seðla­bank­inn hafði spáð því að þau myndu ein­ungis aukast um 3,8 pró­sent. Þar munar heilum fimm pró­sentu­stig­um.

Það kallar á fleiri störf til að framleiða, eða flytja inn, þær vörur og þjónustur sem heimilin eru að kaupa. Vísbendingar eru einnig um að einka­neysla hafi áfram verið kröftug á öðrum árs­fjórð­ungi, og talið er að hún hafi auk­ist um 14 pró­sent milli ára á þeim fjórð­ungi.

Mikil aukning ferðamanna kallar á fleira starfsfólk

Hin stóra ástæða þess að hag­vöxtur verður að öllum lík­indum meiri en reiknað var með er fjölgun ferða­manna. Seðla­bank­inn spáir því nú að tæp­lega 1,7 millj­ónir ferða­manna komi til Íslands á þessu ári. Það eru umtals­vert fleiri en bank­inn bjóst við að myndu koma hingað þegar hann spáði því í maí að fjöld­inn yrði 1,3 millj­ón­ir.

Þá hefur bank­inn breytt spá sinni um komu ferða­manna á næsta ári á þann veg að hann býst nú við 1,9 milljón ferða­manna árið 2023, sem er um 200 þús­und fleiri en hann spáði í vor.

Fjöldi ferða­manna sem heim­sóttu Ísland náði hámarki árið 2018 þegar rúm­lega 2,3 millj­ónir slíkra komu hingað til lands. Erlendir far­þegar voru um tvær millj­ónir árið 2019 en fjöldi þeirra hrundi með kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og árið 2020 náðu þeir ekki hálfri millj­ón. Fara þarft aftur til árs­ins 2012 til að finna ár sem jafn fáir erlendir ferða­menn heim­sóttu Ísland. Í fyrra voru þeir svo um 700 þús­und alls, enda far­ald­ur­inn enn á fullu gasi með til­heyr­andi ferða­tak­mörk­un­um.

Þessi hraða viðspyrna ferða­þjónustu kallar á gríðar­lega marga nýja starfs­menn í geiranum en erfiðlega hefur gengið að manna þau öll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár