Telur verðmæti laxeldisleyfa vera 100 til 150 sinnum hærra en greitt er

Þórólfur Matthíasson hagfræði­prófessor segir að ef miðað er við það sem greitt er fyrir leyfi til sjókvíaeldis á laxi í Noregi sé verðmæti þeirra leyfa sem veitt voru á norðan­verðum Vestfjörðum 31 til 56 milljarðar króna.

Telur leyfin miklu meira virði
Telur leyfin miklu meira virði Þórólfur telur að virði þeirra leyfa sem lax­eld­is­fyr­ir­tæki hafa fengið úthlutað á norð­an­verðum Vest­fjörðum sé 100 til 150 sinnum meira en fyr­ir­tækin greiða fyrir þau. Mynd: Shutterstock

Verðmæti þeirra starfs­leyfa sem tveimur laxeldis­fyrirtækjum voru veitt á norðan­verðum Vestfjörðum gætu numið á bilinu 31 til 56 milljörðum króna, ef miðað er við niður­stöður á uppboði á viðlíka heimildum í Noregi síðastliðið sumar. Það er um 100 til 150 sinnum hærra en greitt er fyrir leyfin hér á landi. Til saman­burðar var rúmum 19 milljörðum veitt í stofn­framkvæmdir í vegagerð á Vestfjörðum á árunum 2005 til 2016.

Þórólfur Matth­í­as­son

Þórólfur Matthíasson hagfræði­prófessor vekur athygli á þessu í grein í Frétta­blaðinu í dag. Þar bendir hann á að í uppboðinu á heimildum til sjókvíaeldis meðfram strand­lengju Noregs hafi fjórtán fyrirtæki fengið leyfi og hafi þau greitt einskiptis­greiðslu frá 1,8 milljónum til 3,2 milljóna íslenskra króna til að setja upp kvíar sem afkasti sem svari til fram­leiðslu eins tonns af slátur­laxi á ári. Miðað við útreikninga Þórólfs má gera ráð fyrir að viðlíka einskiptis­greiðsla fyrir­tækjanna sem starfa á Íslandi jafngildi 20 þúsund krónum.

Gæti greitt vegagerð á Vestfjörðum í 10 til 20 ár

Fjár­munirnir sem norsku fyrir­tækin greiða renna inn í sjóð, Havbruksfondet, sem ráðstafar um 80 prósentum af tekjum sínum til sveitar­félaganna þar sem laxeldi er stungað. „Til saman­burðar ráðstafar Umhverfis­sjóður sjókvíaeldis á Íslandi drjúgum hluta fjármagns síns í styrki til fiskeldis­fyrir­tækjanna sjálfra eða samstarfs­aðila þeirra.“

Þórólfur nefnir að laxeldi kalli á marg­háttaðar fjár­festingar af hálfu sveitar­félaganna þar sem það fer fram, meðal annars vöktunar­ferlum vegna starfseminnar, en ekki síður uppbyggingu á innviðum. Því séu sterk rök fyrir því að fara sambærilega leið og farin hefur verið í Noregi hér á landi. Þannig má ætla að verðmæti þeirra leyfa sem Arctic Sea Farm og Fjarðalax hafa fengið í Patreks­firði og Tálkna­firði, starfs­leyfi fyrir eldi upp á 17.500 tonn, nemi á bilinu 31 til 56 milljörðum króna. Það sé 100 til 150 sinnum hærri upphæð heldur en greidd er til Umhverfis­sjóðs sjókvíaeldis.

Til saman­burðar má nefna að útgjöld vegna stofn­framkvæmda í vegagerð á Vestfjörðum námu rúmum 19 milljörðum á árabilinu 2005 til 2016. Mögulegur umfram­arður af fisk­eldinu gæti því greitt vegagerð á Vestfjörðum í 10 til 20 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár