Hjaðnandi verðbólga í stríðshagkerfi Rússa

Stýri­vextir í 20% og hagvöxtur í núlli.

Vladimir Pútín
Vladimir Pútín Vonin í vest­rænum löndum hefur snúið að því að hag­kerfi Rúss­lands þoli ekki til lengdar inn­rás­ar­stríðið í Úkraínu. Mynd: Spútnik

Ársverð­bólga í Rússlandi dróst verulega saman árið 2025, samkvæmt gögnum frá hagstofu ríkisins sem birt voru í dag, en það virðist sem aðgerðir seðla­bankans til að hemja verð­hækkanir hafi borið árangur.

Seðla­banki Rússlands hélt stýri­vöxtum nálægt 20 prósentum í næstum tvö ár þar sem mikil hernaðar­útgjöld, sem í upphafi gáfu rússneska hagkerfinu byr undir báða vængi, ýttu einnig undir gríðar­lega verðbólgu.

Verð­hækkanir hægðu á sér og námu um sex prósentum á síðasta ári, að sögn Rosstat-hagstofunnar.

Þetta er mikill samdráttur frá þeim 10 prósentum sem mældust árið 2024 og var einnig undir því sem seðla­bankinn og sérfræðingar höfðu spáð.

Árið 2025 hóf bankinn að lækka stýri­vexti smám saman eftir því sem verð­hækkanir drógust saman og fyrirtæki kvörtuðu undan háum lántöku­kostnaði sem hefur íþyngt hagvexti.

Í síðasta mánuði sagði Rosstat að hagvöxtur hefði verið nálægt núlli á þriðja ársfjórðungi.

Í nóvember lækkaði verð­bólgan niður í um sex prósent úr sjö prósentum mánuðinn á undan, sem er mesta 12 mánaða lækkun ársins 2025, að sögn Rosstat.

Bankinn stefnir að fjögurra prósenta verðbólgu fyrir árið 2027.

Verðbólga á Íslandi hefur hins vegar farið vaxandi síðustu mánuði. Hún var 4,5% í síðasta mánuði og gera markaðs­aðilar við að hún hækki töluvert, eða í 5,1%.

Stjórn­völd í Kreml hafa hækkað skatta til að sækja í vasa borgara og fyrir­tækja til að brúa fjárlagagat síðasta árs sem nam um 50 milljörðum dala, eða sem nemur 6,3 billjónum króna.

Á fjórum árum stríðsins í Úkraínu hafa hernaðar­útgjöld Rússlands rokið upp úr öllu valdi, á meðan olíu- og gastekjur þeirra hafa dregist saman vegna viðskipta­þvingana.

Árið 2025 jukust hernaðar­útgjöld Rússlands um þrjú prósent frá árinu 2024, sem samsvarar um sjö prósentum af vergri lands­framleiðslu (VLF), samkvæmt mati Alþjóð­legu friðar­rannsóknar­stofnunarinnar í Stokk­hólmi (SIPRI).

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár