Skip Vinnslustöðvarinnar selt til ónefnds fyrirtækis í Hong Kong

Vinnslu­stöðin vill ekki gefa upp nafn fyrir­tækisins sem kaupir Sighvat Bjarnason.

Vinnslu­stöðin í Vestmanna­eyjum hefur selt eitt af skipum sínum, nóta- og togveiði­skipið Sighvat Bjarnason, til ónefnds fyrir­tækis í Hong Kong. Þetta stað­festir Sigurgeir Brynjar Krist­geirsson, framkvæmda­stjóri Vinnslu­stöðvarinnar, í tölvu­pósti. 

Vinnslu­stöðin greindi sjálf frá sölu skipsins á heimasíðu sinni, en sagði þá ekki frá því hvaða fyrirtæki keypti skipið né frá hvaða landi það er. Salan á Sighvati Bjarna­syni var tilkynnt á sama tíma og kaup Vinnslu­stöðvarinnar á uppsjávar­skipinu Garðari af norskri útgerð. 

„Fyr­ir­tækið er frá Hong Kong eins og ég sagði og er búið að greiða kaup­verðið, sem skiptir okkur mestu máli.“
Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son

Sigurgeir Brynjar, eða Binni eins og hann er yfirleitt kallaður, segir að Vinnslu­stöðin vilji ekki greina frá nafni fyrir­tækisins í Hong Kong fyrr en fulltrúar fyrir­tækisins hafa gefið leyfi fyrir því. Hann segir að aðalmálið fyrir Vinnslu­stöðina sé að kaupverð skipsins hafi nú …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár