Tæpur helmingur andvígur þriðja orkupakkanum

Nærri helmingur þeirra sem tóku afstöðu er andvígur því að Alþingi samþykki þriðja orku­pakkann en 30 prósent fylgjandi samþykkt samkvæmt nýrri könnun Frétta­blaðsins. Stuðningur við málið eykst eftir því sem fólk hefur kynnt sér það betur.

Tæplega helmingur þeirra sem taka afstöðu er andvígur því að þriðji orku­pakkinn verði samþykktur á Alþingi. Þá er 30 prósent hlynntur samþykkt orku­pakkans en 21,7 prósent hlutlaus. Stuðningur við samþykkt eykst eftir því fólk hefur kynnt sér þriðja orku­pakkann betur en alls söguðust tæplega 60 prósent svarenda ekki hafa kynnt sér málið eða kynnt sér það illa. Þetta kemur fram í niður­stöðum skoðananakönnunar sem Zenter rann­sóknir framkvæmdu fyrir Frétta­blaðið.

Stærsti hópur svarenda óviss

Í umfjöllun Frétta­blaðsins segir að þegar svör allra eru skoðuð þá sé ljóst að stærsti hópurinn eða 36,3 prósent, segist ekki vita hvort hann sé hlynntur eða andvígur þriðja orku­pakkanum. Í könnunni var jafnframt spurt hversu vel eða illa fólk hefði kynnt sér orku­pakkann og samkvæmt niður­stöðunum eykst stuðningur við samþykkt eftir því sem fólk hefur kynnst sér málið betur. Alls sögðust tæp 59 prósent annaðhvort ekki hafa kynnt sér málið eða kynnt sér það illa.

Af þeim sem segjast hafa kynnt sér málið vel eru 46 prósent hlynnt samþykkt, 26 prósent þeirra sem hvorki hafa kynnt sér málið vel né illa, 19 prósent þeirra sem hafa kynnt sér orku­pakkann illa og 12 prósent þeirra sem hafa kynnt sér málið vel.

Þá segist helmingur þeirra sem hafa kynnt sér málið vel og þeirra sem hafa hvorki kynnt sér það vel né illa er andvígur samþykkt þriðja orku­pakkans. Þá eru 46 prósent þeirra sem hafa kynnt sér málið illa og 45 prósent þeirra sem ekki hafa kynnt sér það andvíg samþykkt þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár