Segist hlusta á gagnrýni vegna þriðja orkupakkans

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir seg­ist ekki sann­færð um að slag­ur­inn um inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans sé slagur sem eigi að taka.

„Ég hlusta á það sem menn eru að segja,“ segir Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, um þá gagn­rýni sem ýmsir sam­flokks­menn hennar hafa sett fram á inn­leið­ingu hins svo­kall­aða þriðja orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins hér­lendis. Hún bendir hins vegar á að Ísland hafi aldrei ákveðið að aflétta ekki stjórn­skipu­legum fyr­ir­vara til að inn­leiða til­skipun frá Evr­ópu­sam­band­inu. „Það er engin hræðslu­á­róður að segja að við vitum ekki hvert það leiðir okkur. Vegna þess að ég hef engan heyrt svara því[...]„Ég er ekki sann­færð um að þetta sé slagur sem við eigum að taka, um efni máls, það er þessa þriðja orku­pakka. Að við ætlum ekki að aflétta stjórn­skip­un­ar­legum fyr­ir­vara.“

[links]Þetta er meðal þess sem fram kemur í við­tali Þórdísar Kol­brúnar við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 sem frum­sýndur var á mið­viku­dag. Hægt er þátt­inn í heild í spil­ar­anum hér að ofan.

Heitt pólitískt mál innan Sjálfstæðisflokks

Þriðji orku­pakk­inn er orðin að heitu póli­tísku máli, sér­stak­lega innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Haldinn var fjöl­mennur fundur í Valhöll í lok ágúst á vegum hverfa­fé­laga Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins í Smá­í­­­búða-, Bú­­­staða- og Foss­vogs­hverfi og Hlíða- og Holta­hverfi í Reykja­vík­­­ur. Sá fundur sendi frá sér ályktun þar sem skorað var „ein­­­dregið á for­ystu Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins að hafna þriðja orku­­pakka Evr­­­ópu­­­sam­­­bands­ins á þeim grunni að hann stang­­­ast á við ákvæði stjórn­­­­­ar­­­skrár­inn­­­ar, opn­ar Evr­­­ópu­­­sam­­­band­inu leið til yf­ir­ráða yfir einni helstu auð­lind Íslands og hækk­­­ar verð á raf­­­orku og af­­­leið­ing­ar til langs tíma eru óvis­s­­­ar.“

[adspot]Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýndi for­ystu síns gamla flokks harð­lega í leið­ara skömmu síðar þar sem hann sagði Þordísi Kolbrúnu, vara­for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafa látið rugla sig í rím­inu.Hann sagði líka að: „Erfitt væri að ímynda sér að þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins muni standa að þessu máli, að minnsta kosti ekki þeir fáu sem hlupust ekki undan merkjum í Icesave.“

Þórdís Kolbrún segir að það verði að koma í ljós hvað þing­menn flokks­ins geri í mál­inu. „Ég segi bara að okkur liggur ekk­ert á að afgreiða þetta mál. Þessi umræða hún truflar mig ekk­ert. Mér finnst hún fín ef hún á end­anum leiðir til þess að við komumst lengra í að ræða það sem málið snýst um. Það eru auð­vitað skiptar skoð­anir innan allra stjórn­ar­flokk­anna um þetta mál.“

Að hennar mati er algjört lyk­il­at­riði að setja meira fjár­magn í að gæta hags­muna Íslands þegar kemur að inn­leið­ingum á til­skip­unum frá Evr­ópu­sam­band­inu á grund­velli EES-samn­ings­ins. „Þetta er algjört lyk­il­at­riði og þetta er nákvæm­lega það sem utan­rík­is­ráð­herra hefur nú tekið ákvörðun um að gera. Og við erum að setja aukið fjár­magn í þessa hags­muna­gæslu úti sem skiptir öllu máli vegna þess að EES-samn­ing­ur­inn er í mínum huga og margra ann­arra mik­il­væg­asti alþjóða­samn­ingur sem við höfum.“

Tveir sérfræðingar segja áhrifin nær engin

Í minn­is­blaði sem lög­­­mað­­ur­inn Ólafur Jóhannes Ein­­ar­s­­son, áður fram­­kvæmda­­stjóri hjá Eft­ir­lits­­stofnun EFTA (ES­A), gerði fyrir Þór­­dísi Kol­brúnu, og birt var opin­ber­­lega 17. apr­íl, kom skýrt fram að þriðji orku­­pakk­inn haggi í engu heim­ildum íslenskra stjórn­­­valda til að banna fram­­sal á eign­­ar­rétti að orku­auð­lindum og rétti Íslands til að ákveða með hvaða skil­yrðum orku­auð­lindir lands­ins eru nýtt­­ar.

Í sept­em­ber vann svo lög­mað­ur­inn Birgir Tjörvi Pét­urs­son grein­ar­gerð þar sem fjallað var um hinn svo­kall­aða þriðja orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins og komst að því að hann kalli ekki á end­ur­skoðun EES.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið undanfarið ár