Ógnarástandið í Belgíu - gæsla hert við byggingar ESB og NATO

Sérstakar varnir á vegum hermanna eru nú við byggingar gyðinga­samfélagsins í Belgíu, einkum í Brussel, að því er Wall Street Journal greinir frá. Um 300 hermenn eru á götum úti, einkum í Brussel, eftir að forsætis­ráðherra Belgíu, Charles Michel, hækkaði viðbúnaðar­stig í landinu vegna ógnar frá íslömskum hryðjuverka­samtökum. Þung­vopnaðir hermenn eru nú við byggingar Evrópu­sambandsins og NATO í Brussel.

Jusqu’à 300 militaires seront progressivement déployés à partir de ce samedi matin : http://t.co/cILfAN0z5D

— Charles Michel (@CharlesMichel) January 17, 2015

Lögreglu­sveitir víða í Evrópu standa enn í umfangsmestu samræmdu lögreglu­aðgerðum sem gripið hefur verið til í álfunni í langan tíma, með það að markmiði að koma í veg fyrir frekari árásir íslamskra hryðju­verkamanna.

Í Belgíu hafa þrettán verið hand­teknir og tveir skotnir til bana í borginni Vervier, í Frakk­landi hafa tólf verið hand­teknir og í Þýska­landi eru í gangi aðgerðir sem miða að því að koma í veg fyrir árásir. Tveir hafa verið hand­teknir og húsleitir framkvæmdar á að minnsta kosti ellefu stöðum. Þá hefur viðbúnaðar­stig við opinber svæði og byggingar verið hækkað, og eru vopnaðir lögreglu­menn víða í eftirlits­störfum.

Samkvæmt fréttum breska ríkis­útvarpsins BBC hafa fimm af þeim þrettán sem handtekin voru í Belgíu gær, þegar verið ákærð fyrir að aðstoða mennina tvo sem voru skotnir eftir þeir hófu skothríð á lögreglu við undir­búning árása á lögreglu­menn og lögreglu­stöðvar í Belgíu.

Mikill viðbúnaður er í álfunni og eru vopnaðir lögreglu­menn víða, einkum á opinberum stöðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár