Frambjóðandi talar vel um pólitíska mótherja: „Lýðræðisins fínasta stund“

Pawel Bartoszek, fram­bjóðandi Viðreisnar, tekur að sér að hrósa pólitískum mótherjum sínum. Framkvæmda­stjóri Pírata segir þá vilja einbeita sér að því að bæta sjálfa sig frekar en gagnrýna aðra.

Pawel Bartoszek
Pawel Bartoszek Fram­bjóð­andi Við­reisnar slær nýjan tón í kosn­inga­bar­átt­una. Mynd: Youtube

Pawel Bortoszek, stærð­fræðingur og fram­bjóðandi Viðreisnar, segir Pírata eiga skilið að hafa fengið aukinn stuðning og þakkar fyrir að þeir hafi vakið áhuga fólks á stjórn­málum. 

Pawel hrósaði Pírötum meðvitað í framlagi sínu til breyttrar pólitískrar umræðu. Venjan í stjórnmála­umræðu er að andstæðingar gagnrýni hver annan í tilraun til að auka fylgi við eigin flokka og draga úr fylgi annarra. Framkvæmda­stjóri Pírata sagði í viðtali í morgun að flokkur þeirra vildi síður einbeita sér að því að gagnrýna aðra.

Í færslu sinni á Facebook segir Pawel, undir titlinum „Talað vel um pólitíska mótherja: PÍRATAR“: „Það sem ég er þakklátur Pírötum fyrir er að hafa vakið upp áhuga á stjórn­málum. Hvort sem það er á Pírata­spjallinu eða öðrum síðum þeirra tengdum þá erum við með slatta af fólki, oft fólki undir fertugu, að tala af krafti um stjórnmál og stefnur. Ég hef trú á því að það eitt sé gott. Það valdeflir fólk. Það gefur fólki trú á að það geti breytt hlutum án ofbeldis. Uppgangur Pírata í könnunum eru verðlaun fyrir framlag þeirra til pólitískrar umræðu í landinu. Á einhvern hátt er þetta lýðræðisins fínasta stund.“

„Viljum ekki benda á það sem aðrir séu að gera slæmt“

Sigríður Bylgja Sigurjóns­dóttir, framkvæmda­stjóri Pírata, sagði í Morgun­vaktinni á Rás 1 í morgun að píratar vildu breyta stjórnmála­umræðu með þeim hætti að benda síður á það sem aðrir gera slæmt og meira að uppbyggilegri umræðu.

Sigríður BylgjaFram­kvæmda­stjóri Pírata segir að flokk­ur­inn vilji fremur ein­beita sér að því hvað hann geti gert betur en hvað aðrir geri slæmt.

„Við viljum fara okkar leiðir, ekki benda á hvað aðrir séu að gera slæmt. Það er ekki mjög uppbyggjandi. Heldur ætlum við að einbeita okkur að því hvernig við getum gert hlutina öðruvísi. Hvað okkur langar til að bæta, styrkja okkur. Það gerist ekki neitt nema að þú sinnir sjálfum þér, leggir rækt við sjálfan þig – og þá sjálfan þig sem stjórn­málaflokk. Rækta upp það góða og hvernig þú vilt vera, setja þér ákveðna fram­tíðarsýn. Þú hefur ekki orku eða úthald í það ef þú ert alltaf að pota í einhverja aðra og einblína á hvað er að hjá þeim.“

Sigríður Bylgja sagði tilgang Pírata ekki vera að ná völdum heldur framkalla breytingar. „Það sem Píratar hafa er fólk með hjarta og einlægni – sem vill breyta íslensku stjórnmála­kerfi. Það þurfa að eiga sér stað róttækar breytingar á samfélagi okkar.“

Gagnrýndir fyrir óvægna umræðu

Píratar hafa hins vegar verið gagn­rýndir fyrir óvægna umræðu á Pírata­spjallinu á Facebook, en spjallið er opið. Meðal þeirra eru Össur Skarp­héðinsson, þingmaður og fyrr­verandi formaður Samfylkingarinnar, sem meðal annars var uppnefndur „fat bastard“ í umræðum á Pírata­spjallinu.

Össur Skarp­héð­ins­sonKallaður „tröll“ og „fat bast­ard“ á opnu spjalli Pírata á Facebook.

„Á minna en einum sólar­hring hef ég verið kallaður „tröll,“ sömuleiðis „fat bastard“ og líka „þjófur“ á opinberri síðu Pírata. Þetta er svona tæknilega þöggun þar sem ofbeldi er beitt til að hrekja frá þá sem hafa óæskilegar skoðanir. Þetta er semsagt hreyfingin sem ætlaði að innleiða ný vinnu­brögð. – Ja, mikill er andskotinn, sagði kellingin og sló á lær,“ skrifaði Össur á Facebook-síðu sína í ágúst.

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, svaraði Össuri því til að frelsi umræðunnar krefðist stjórn­leysis og hefði í för með sér ókurteisi. „Þetta er vissulega spjall­veggur sem Píratar settu upp og vilja hafa sem frjálsastan, en við getum augljós­lega ekki borið ábyrgð á ókurteisi annarra. Það er nú bara þannig í lífinu að maður stjórnar ekki öllu, og ég hreinlega skil ekki alveg hvernig við eigum að geta haldið opið spjall, sem er opið öllum og á sama tíma bannað ókurteisi og dólgshátt. Opið spjall sem allir geta tekið þátt í einfald­lega krefst ákveðins stjórn­leysis.“

Samkvæmt síðasta Þjóðar­púlsi Gallups mælast Píratar með 26% fylgi, eða jafnmikið og Sjálfstæðis­flokkurinn. 11% styðja Viðreisn en 8% Samfylkinguna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár