Wessman segir augljóst að ásakanir séu gerðar í „fjárhagslegum tilgangi“

For­stjóri Alvogen segir þungar ásak­anir Halldórs Krist­manns­sonar um ofbeldi, morð­hót­anir og skipu­lagðar rógs­her­ferðir hafa verið lagðar fram til að ná af honum fé.

Róbert Wessman, forstjóri Alvogen
Róbert Wessman, for­stjóri Alvogen Mynd: Alvogen

Róbert Wessman, for­stjóri Alvogen, segir að það sé aug­ljóst að ásak­anir Halldórs Krist­manns­sonar, fyrrum sam­starfs­mann hans, um ofbeldi, morð­hót­anir og skipu­lagðar rógs­her­ferðir, séu lagðar fram í fjár­hags­legum til­gangi. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Róberti sem barst fjöl­miðlum í dag.

Líkt og kom fram í Kjarn­anum fyrr í dag sagð­ist Halldór, sem hefur verið einn nán­asti sam­starfs­maður Róberts síð­ast­liðna tvo ára­tugi, Róbert hafa orðið upp­vís að morð­hót­un­um, lík­ams­árásum, sví­virði­legum ásök­unum og æru­meið­ingum í garð meintra óvild­ar­manna.

Þá hafi Róbert lagt á ráðin um rógs­her­ferðir í fjöl­miðlum gegn ýmsu fólki sem hann hafi borið kala til. Þar á meðal hafi verið við­skipta­keppi­nautar og opin­berir emb­ætt­is­menn. Einnig seg­ist Halldór hafa per­sónu­lega orðið fyrir lík­ams­árás og orðið vitni af annarri frá Róberti, þegar hann var undir áhrifum áfengis á við­burðum Alvogen erlendis.

Róbert segir hins vegar aug­ljóst, af bréfa­send­ingum lög­manna Halldórs, að ásak­an­irnar séu gerðar í fjár­hags­legum til­gangi, enda komi þar fram kröfur um greiðslur til handa honum. Einnig bætir Róbert við að fram hafi komið óháð alþjóð­leg lög­manns­stofa til að fara ofan í saumana á kvört­unum Halldórs, auk þess sem talað var við tugi starfs­manna og farið yfir fjölda gagna, en fyr­ir­tækið sendi frá sér til­kynn­ingu í síð­ustu viku það taldi ásak­an­irnar ekki eiga sér neina stoð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár