„Ég var beinlínis kýldur kaldur í andlitið án fyrirvara í vitna viðurvist“

Halldór Krist­manns­son segir Róbert Wessman hafa þrýst á að Mannlífi, fjöl­miðli sem hann fjár­magn­aði, yrði beitt til að koma höggi á meinta óvild­ar­menn sína. Vegna þessa hafi skap­ast ósætti milli þeirra sem leiddi til þess að Halldór steig til hliðar.

Halldór Kristmannsson og Róbert Wessman.
Halldór Krist­manns­son og Róbert Wessman. Mynd: Samsett

„Samstarf okkar Róberts hefur að mestu leiti verið far­sælt. Það mynd­að­ist hins­vegar alvar­legur ágrein­ingur á milli okkar sum­arið 2018 og aftur í sept­em­ber 2020, þegar Róbert bar hátt­setta emb­ætt­is­menn á Íslandi, alþjóð­legan fjár­festi og íslenskan blaða­mann þungum sökum. Í tugum tölvu­pósta og texta­skila­boða Róberts eru umræddir óvild­ar­menn bornir þungum sökum, sem ég tel að hafi í senn verið algjör­lega ósannar og sví­virði­legar.“

Þetta segir Halldór Krist­manns­son, náin sam­starfs­maður Róberts Wessman, for­stjóra Alvogen, og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra hjá Alvogen og Alvotech, í yfir­lýs­ingu sem hann sendi á fjöl­miðla í dag.

Tilefni yfir­lýs­ing­ar­innar er að Halldór steig fram í Morg­un­blað­inu í morgun og greindi frá því að hann hefði lagt fram kvörtun til stjórnar Alvogen vegna stjórn­ar­hátta og ósæmi­legrar hegð­unar Róberts Wessman í jan­úar síð­ast­liðnum. Stjórn fyr­ir­tæk­is­ins hefur, eftir rann­sókn, kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ásak­anir Halldórs séu til­hæfu­lausar en hann sjálfur segir að um hvít­þvott sé að ræða.

Á meðal gagna sem Halldór seg­ist hafa lagt fram eru tugir tölvu­pósta og texta­skila­boða, sem eiga að sýna hvernig hann var beittur óeðli­legum þrýst­ingi til að koma höggi á óvild­ar­menn Róberts, sem hann bar þungum sökum.

Vildi ekki koma höggi á aðila í fjölmiðlum

Í yfir­lýs­ing­unni í dag segir Halldór að hann hafi lagt fram ofan­greind gögn og óskað eftir því form­lega við Róbert og stjórnir bæði Alvogen og Alvotech að þau svari þessum ásök­unum. Hann hafi jafn­framt sett sig í sam­band við alla þá aðila sem hann telur Róbert hafa valdið skaða og telur rétt að Róbert biðji þá afsök­unar.

Halldór segir að hann hafi talið „fulla ástæðu til þess að setja fót­inn niður og tjáði Róbert ítrekað, að ég myndi ekki beita mér fyrir því að koma höggi á umrædda aðila í fjöl­miðlum og vega bein­línis að æru og mann­orði þeirra, eins og hann vildi. Ég var um tíma útgef­andi Mannlífs, sem Róbert fjár­magn­aði og átti, en þar mynd­að­ist til að mynda mik­ill ágrein­ingur um rit­stjórn­ar­stefnu og sjálf­stæði. Úr þessu skap­að­ist vax­andi ósætti okkar á milli, sem gerði það að verkum að ég steig nauð­beygður til hliðar tíma­bundið, og upp­lýsti stjórnir fyr­ir­tækj­anna um mála­vexti. Ég vil standa vörð um ákveðin sið­ferð­is­leg gildi, og lét því ekki hagga mér í þessum málum.“

Morðhótanir sendar árið 2016

Í yfir­lýs­ingu Halldórs segir að í ítar­legri grein­ar­gerð sem hann hafi skilað til stjórna Alvogen og Alvotech sé skorað á þær að taka líf­láts­hót­anir og ógn­andi texta­skila­boð Róberts til sér­stakrar rann­sóknar, en þar sé fyrr­ver­andi sam­starfs­mönnum og fjöl­skyldum þeirra ógnað.

Á vef RÚV segir að skila­boðin hafi farið, á nítján klukku­stunda tíma­bili í upp­hafi árs 2019, til tveggja stjórn­enda í lyfja­heim­inum og fyrrum sam­starfs­manna hjá Alvogen, sem höfðu borið vitni í dóms­máli sem rekið var hér á landi og Róbert átti aðild að.

„Ég mun drepa þig“, „Ég mun eyði­leggja þig og fjöl­skyldu þína“ og „Þú ert dauður, ég lofa þér því“ er á meðal þess sem sjá má í skila­boð­unum, sam­kvæmt frétt RÚV.

Halldór segir að honum hafi þótt dap­ur­legt að vita til þess að Róbert hafi sent fyrrum sam­starfs­fé­lögum sínum morð­hót­anir árið 2016 og honum hafi verið brugðið. Slíkar hót­anir varða allt að sex ára fang­elsi hér á landi.

Þá sé enn sorg­legra að við­ur­kenna, að hafa orðið per­sónu­lega fyrir lík­ams­árás og orðið vitni af annarri frá Róbert, þegar hann var undir áhrifum áfengis á við­burðum fyr­ir­tæk­is­ins erlendis. „Þegar ég síðar nefndi þetta við Róbert sagð­ist hann hafa verið að grín­ast og við hefðum verið í kýl­inga­leik. Ég var bein­línis kýldur kaldur í and­litið án fyr­ir­vara í vitna við­ur­vist. Mér var aug­ljós­lega ekki skemmt, og hef ekki orðið var við það almennt séð að for­stjórar fari í kýl­inga­leiki við sam­starfs­menn.“

Telur niðurstöðuna hvítþvott

Fyrir tæpri viku síðan sendi stjórn Alvogen frá sér yfir­lýs­ingu þar sem greint var frá því að henni hafi borist bréf 20. jan­úar síð­ast­lið­inn frá fyrr­ver­andi starfs­manni fyr­ir­tæk­is­ins þar sem kvartað var yfir hegðun Róberts Wessman. Óháð nefnd hafi verið sett á fót til að kanna inni­hald kvört­un­ar­innar og Róbert sagði sig frá störfum fyrir Alvogen á meðan að sú athugun fór fram.

Halldór segir nið­ur­stöðu rann­sóknar sé aug­ljós hvít­þvottur undir áhrifum Róberts. „Ég tel að morð­hót­anir, lík­ams­árásir og sví­virði­legar ásak­anir, er varða meinta óvild­ar­menn og æru­meið­ingar í þeirra garð, sé í raun óverj­andi hegðun for­stjóra alþjóð­legra fyr­ir­tækja. Þetta hlýtur að vekja upp spurn­ingar um hæfi hans sem stjórn­anda. Hins­vegar vona ég að þessi fyr­ir­tæki blóm­stri í fram­tíð­inni, þannig að ég sem hlut­hafi, geti verið stoltur af fram­gangi þeirra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár