Segir Róbert Wessman hafa beitt ofbeldi og lagt á ráðin um rógsherferðir í fjölmiðlum

Einn nán­asti sam­starfs­maður Róberts Wessman til tveggja ára­tuga hefur stigið fram og sagt for­stjóra Actavis hafa sýnt af sér óverj­andi hegðun fyrir for­stjóra í alþjóð­legu fyr­ir­tæki.

Róbert Wessman, forstjóri Alvogen og Alvotech.
Róbert Wessman, for­stjóri Alvogen og Alvotech. Mynd: Aðsend mynd

Halldór Krist­manns­son, einn nán­asti sam­starfs­maður Róberts Wessman síð­ast­liðna tvo ára­tugi, segir for­stjóra Alvogen hafa orðið upp­vís að morð­hót­unum, lík­ams­árásum, sví­virði­legum ásök­unum og æru­meið­ingum í garð meintra óvild­ar­manna. Þá hafi Róbert lagt á ráðin um rógs­her­ferðir í fjöl­miðlum gegn ýmsu fólki sem hann hafi borið kala til. Þar á meðal hafi verið við­skipta­keppi­nautar og opin­berir emb­ætt­is­menn. Frá þessu er greint í frétt í Morg­un­blað­inu í dag þar sem rætt er við Halldór.

Róbert Wessman hefur skipt sér nokkuð af fjöl­miðla­rekstri á Íslandi á und­an­förnum árum. Hann kom að fjár­mögnun fjöl­miðla­sam­steypu sem rekin var undir hatti Pressunnar. Sá rekstur óx mikið á árunum 2014 til 2017 með yfir­töku ann­arra fjöl­miðla. Pressu­veldið leið undir lok haustið 2017 og þá eign­að­ist fjár­fest­ing­ar­fé­lag sem var meðal ann­ars í eigu Róberts útgáfu­fé­lagið Birting, sem gaf meðal ann­ars út viku­blaðið Mannlíf. Róbert seldi sinn hlut í útgáf­unni árið 2018 til Halldórs Krist­manns­sonar.

Í Morg­un­blað­inu í dag segir Halldór að sú hegðun sem Róbert hafi sýnt af sér, og hann kvart­aði til stjórnar Alvogen yfir, sé óverj­andi hegðun for­stjóra í alþjóð­legu fyr­ir­tæki og hljóti að vekja upp spurn­ingar um hæfi Róberts sem for­stjóra.

Sögðu kvartanirnar ekki eiga sér stoð

Fyrir tæpri viku síðan sendi stjórn Alvogen frá sér yfir­lýs­ingu þar sem greint var frá því að henni hafi borist bréf 20. jan­úar síð­ast­lið­inn frá fyrr­ver­andi starfs­manni fyr­ir­tæk­is­ins þar sem kvartað var yfir hegðun Róberts Wessman. Óháð nefnd hafi verið sett á fót til að kanna inni­hald kvört­un­ar­innar og Róbert sagði sig frá störfum fyrir Alvogen á meðan að sú athugun fór fram.

Nokkru seinna, 10. febr­úar, mætti Róbert þó í ítar­legt við­tal í Kastljós á RÚV en var þar titl­aður for­stjóri og stofn­andi Alvotech, syst­ur­fyr­ir­tækis Alvogen. Í mars var hann svo gestur Sölva Tryggva­sonar í podcasti hans, og þar var hann einnig titl­aður for­stjóri Alvotech.

Sá sem kvart­aði, Halldór Krist­manns­son, hefur verið upp­lýs­inga­full­trúi Alvogen frá stofnun og starf­aði þar áður með Róberti hjá Actavis. Ásamt Árna Harð­ar­syni hefur Halldór verið nán­asti sam­starfs­maður Róberts á þess­ari öld.

Erlend lög­fræði­stofa, White & Case, var fengin til að fara yfir kvart­anir Halldórs og íslenska lög­manns­stofan Lex veitti ráð­gjöf. Rann­sóknin stóð yfir í átta vikur og á meðan henni stóð var farið yfir gögn og rætt við tugi núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­manna.

Í yfir­lýs­ingu Alvogen frá því í síð­ustu viku stóð: „Nið­ur­stað­an er skýr og ljóst að efni kvart­an­ann­a á sér enga stoð. Ekkert bend­ir til þess að starfs­hætt­ir Rób­erts Wessman séu þess eðl­is sem greint er frá í bréf­in­u og eng­in á­stæð­a er til þess að að­haf­ast neitt vegn­a þess­a máls.“

Segist hafa verið „kýldur kaldur“

Strax var greint frá því í fjöl­miðlum að starfs­mað­ur­inn sem um ræddi væri Halldór Krist­manns­son, þrátt fyrir að hann hefði ekki verið nafn­greindur í yfir­lýs­ing­unni.

Hann tjáir sig í fyrsta sinn um málið í Morg­un­blað­inu í dag og seg­ist telja að rann­sóknin á Róberti beri vott um hvít­þvott. Þar hafi verið litið fram­hjá hátt­semi sem stjórn­inni hafi þegar verið kunn­ugt um og Róbert hafi þegar þurft að biðj­ast afsök­unar á. Þá hafnar Halldór því algjör­lega að hafa sett fram fjár­kröfu á hendur fyr­ir­tæk­inu líkt og sagt var að hann hefði gert í áður­nefndri yfir­lýs­ingu.

Sjálfur segir Halldór að hann hafi verið „kýldur kaldur“ í vitna við­ur­vist og önnur dæmi væru um að Róbert hefði beitt lík­am­legu ofbeldi. Í Morg­un­blað­inu segir að blaðið hafi rætt við vitni sem hafi séð þegar Halldór hafi verið kýldur.

Stundin birti umfjöllun um Róbert nýverið þar sem kom meðal ann­ars fram að hann og fyr­ir­tæki á hans vegum hafi stundað það í gegnum árin að greiða erlendum aðilum og fyr­ir­tækjum fyrir jákvæða umfjöllun um sig. Var það sagt hluti af mark­vissri ímynd­ar­sköpun hans og fyr­ir­tæk­is­ins. Alvogen og Alvotech noti svo þessar keyptu og jákvæðu umfjall­anir svo til að aug­lýsa og kynna fyr­ir­tækið á Íslandi og erlendis.

Meðal ann­ars hafi verið greiddar um 70 þús­und pund síðla árs 2017, sem eru nálægt tíu millj­ónir króna á gengi þess tíma, fyrir for­síðu­við­tal við Róbert í enska tíma­rit­inu World Finance.

Stefna á skráningu í Hong Kong

Alvogen hefur vaxið mikið á und­an­förnum árum og byggt upp umfangs­mikla starf­semi hér­lendis. Það er með starf­semi i 20 löndum og hjá fyr­ir­tæk­inu vinna um 1.700 manns. Fyr­ir­tækið sér­hæfir sig í þróun og fram­leiðslu sam­heita­lyfja, lausa­sölu­lyfja og líf­tækni­lyfja.

Alvogen er svo stór hlut­hafi í sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæk­inu Alvotech, sem ætlar að setja á markað sam­heita­lyf innan tveggja ára. Róbert sagði í áður­nefndu Kast­ljós­við­tali að stefnt væri að útflutn­ings­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins muni nema um 20 pró­sentum vergrar lands­fram­leiðslu innan fárra ára.

Stærsti hlut­haf­inn í Alvotech er hins vegar Aztiq pharma, sjóður sem er undir stjórn Róberts. Í fyr­ir­tækja­skrá er Róbert skráður óbeinn end­an­legur eig­andi að 38,6 pró­sent hlut í Alvotech, sem gefur til kynna að það sé eign­ar­hlut­ur­inn sem hann stýrir.

Stefnt er að skrán­ingu Alvotech í kaup­höll í Hong Kong síðar á þessu ári og með það fyrir augum hefur fyr­ir­tækið verið að sækja sér nýtt hlutafé til að tryggja rekst­ur­inn fram yfir fyr­ir­hugað hluta­fjár­út­boð.

Frétta­blaðið greindi frá því í síð­ustu viku að sam­tals hafi Alvotech sótt sér um 100 millj­ónir dala, um 12,7 millj­arða króna, í nýtt hlutafé á und­an­förnum fjórum mán­uðum. Síðast bætt­ust TM, fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Hvalur og tveir sjóðir Stefnis, sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis Arion banka, í hóp­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár