Fyrstu spár benda til að Danir hafi sagt nei

Samkvæmt útgönguspá Danska sjón­varpsins sem birt var laust eftir klukkan átta, að dönskum tíma, og kjör­stöðum hafði verið lokað vilja Danir vera óbundnir af samningi Evrópu­sambandsins um samstarf í dóms-og lögreglu­málum og semja sérstak­lega um þessa mála­flokka við önnur ESB ríki.

Samkvæmt útgönguspá Danska sjón­varpsins merktu 53.3% kjósenda við nei á kjör­seðlinum en 46.7% við já. Kjörsókn var meiri en fyrirfram var búist við.

Ef úrslit kosninganna verða þau að meirihluti kjósenda hafi sagt nei, verða Danir að gera sérsamkomulag um þá hluta ESB samningsins sem varða lögreglu-og dómsmál. Danir hafa haft slíkan samning frá árinu 1993 en vegna breytinga innan Evrópu­sambandsins fellur sá samningur nú úr gildi. Nei úrslitin myndu hafa það í för með sér Danir verða að semja uppá nýtt um áður­nefnda þætti, þar vegur samstarfið um Europol, Evrópu­lögregluna, þyngst. Öll ríki Evrópu­sambandsins yrðu að samþykkja slíkan sérsamning vegna Danmerkur, það tæki langan tíma og slíkt samþykki ekki sjálf­gefið. Danski Þjóðar­flokkurinn hefur verið í forystu þeirra flokka sem vilja segja nei. Helstu rök þeirra eru þau að með því að segja já séu Danir að afsala sér sjálf­stæði í ýmsum mála­flokkum og alltof margar ákvarðanir sem varði þjóðarhag verði teknar í Brussel. Nei sinnar telja að auðvelt yrði að semja um Europol samstarfið, það sé ekki áhyggju­efni.

Stjórnar­flokkurinn Venstre,Sósíal­demókratar, Íhalds­flokkurinn, Radikale, og Sósíalíski Þjóðar­flokkurinn styðja já leiðina, sem nefnd hefur verið valleið. Í henni felst að Danmörk undir­gengst 22 atriði ESB samningsins en undan­skilur 28 atriði. Þau kæmu til kasta danska þingsins varðandi breytingar. Lars Lökke Rasmussen forsætis­ráðherra hefur sagt að veiga­mikil mál yrðu ekki til lykta leidd í þinginu, í slíkum tilvikum fengi þjóðin að kjósa. Já fylgjendur hafa í kosninga­baráttunni hamrað á því að nauðsynlegt sé fyrir Dani að kjósa valleiðina, segja já. Annars sé hætta á að Danmörku verði einskonar aukhjól undir ESB vagninum, án áhrifa. Þar vegi lögreglu­samstarfið þyngst en einnig mörg önnur atriði.

Í upphafi kosninga­baráttunnar naut málstaður já sinna meira fylgis. Sá munur hefur smám saman farið minnkandi. Í síðustu könnunum sem gerðar voru fyrir kosningar hafði dæmið snúist við. Fylgjendur þess að segja nei voru komnir með smá forskot.

Stjórnmála­skýrendur hafa bent á að Lars Lökke Rasmussen og já sinnar hafi lagt allt of mikla áherslu á hræðslu­áróður í kosninga­baráttunni. Slíkt hafi ekki farið vel í Dani.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár