ESB íhugar að sekta Visa

Evrópu­sambandið hefur hótað að sekta kreditkorta­fyrirtækið Visa vegna hugsanlegs brots á samkeppnis­lögum í álfunni.

Kreditkortafyrirtækið Visa gæti þurft að borga Evrópusambandinu himinháar sektir.
Kredit­korta­fyr­ir­tækið Visa gæti þurft að borga Evr­ópu­sam­band­inu him­in­háar sektir. Mynd: Úr safni.

Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins hefur hótað kreditkorta­fyrirtækinu Visa sektum fyrir möguleg brot á samkeppnis­lögum. Þetta kemur fram í frétt Reuters.

Möguleg brot Visa snúa að sérstökum færslu­gjöldum sem fyrir­tækið bætir við á öllum færslum á Evrópska efnahags­svæðinu hjá kredit­kortum sem gefin eru út utan Evrópu. Líta má á færslu­gjöldin sem eins konar ferðamanna­skatt, þar sem ferðamenn utan Evrópu borga hærra gjald fyrir allar færslur en Evrópu­búar. 

Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins hefur sent kreditkorta­fyrirtækinu svokallað sektar­blað (charge sheet) sem Visa þarf að svara innan tveggja mánaða.

Gerist Visa sek um að hafa brotið samkeppnislög gæti fyrir­tækið þurft að borga sektir sem nema allt að 10% veltu korta­fyrir­tækisins á alþjóða­vísu, eða um 820 milljarða Bandaríkja­dala ef miðað er við veltu fyrir­tækisins árið 2016.

Framkvæmda­stjórnin hefur áður gert athuga­semdir við færslu­gjöld Visa, en fyrir þremur árum ákvað kreditorta­fyrirtækið að leggja niður færslu­gjöld milli banka í kjölfar rann­sóknar Evrópu­sambandsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár