Metfjöldi merktra fugla á Íslandi í fyrra

Mest var merkt af auðnu­tittlingum hér á landi árið 2018 en merktir voru yfir 21.600 fuglar af 83 tegundum.

Auðnutittlingur
Auðnu­titt­lingur Mynd: Úr safni

Árið 2018 voru alls merktir 21.648 fuglar af 83 tegundum hér á landi og er þetta metfjöldi merktra fugla á einu ári. Mest var merkt af auðnu­tittlingum. Þetta var 98. ár fugla­merkinga á Íslandi og voru virkir merkinga­menn 57 talsins. Þetta kemur fram í frétt Náttúru­fræði­stofnunar Íslands.

Frá upphafi merkinga árið 1921 hafa verið merktir 740.524 fuglar af 158 tegundum. Helmingur merktra fugla árið 2018 voru auðnu­tittlingar, eða 10.945 talsins. Aðrir fuglar sem mikið var merkt af eru skógar­þröstur, snjó­tittlingur, kría, lundi og æðarfugl. Ein tegund, mold­þröstur, var merkt í fyrsta sinn hér á landi.

Óvenju margar endur­heimtur og álestrar á merki bárust á síðasta ári og voru 4.579 endur­heimtur afgreiddar. Af þeim voru næstum því 4.000 svokölluð kontról eigin merkja, það er merktir fuglar sem merkinga­menn ná aftur síðar og sleppa eftir að hafa lesið á merkið. Mest endur­heimtist af auðnu­tittlingum.

Ferðast víða

Alls voru 138 fuglar merktir á Íslandi sem endur­heimtust í útlöndum. Meðal þeirra var fyrsti auðnu­tittlingurinn en hann náðist í net fugla­merkinga­stöðvar á Skagen í Danmörku, 1.729 km frá Akureyri þar sem hann var merktur fyrr sama ár. Nokkrir fuglar náðust eða sáust mjög fjarri merkingar­stað. Sem dæmi endur­heimtust þrír spóar 3.880 til 5.770 km frá merkinga­stað og var sá sem lengst fór drepinn í Guinea-Bissau 52 dögum eftir merkingu. Sá var merktur sem ófleygur ungi á Rang­árvöllum í júní 2016.

Í fréttinni kemur enn fremur fram að storm­máfur sem merktur var sem ungi við Akureyrar­flugvöll sumarið 2013 virðist vera reglu­legur vetrar­gestur í Massachusetts í Banda­ríkjunum, en hann sást þar fyrst í febrúar 2017 og aftur ári síðar, 4.111 km frá merkingar­stað. Á Melrakka­sléttu sáust nokkrar sanderlur vorið 2018 sem merktar voru í Máritaníu og Ghana og voru þær komnar 5 til 7 þúsund kílómetra á leið sinni til varp­stöðva á A-Grænlandi.

Alls var tilkynnt um 88 endur­heimtur og álestra hérlendis á fuglum með erlend merki. Flestir fuglanna, 80 talsins, voru merktir á Bretlands­eyjum, tveir í Portúgal og N-Ameríku, einn í Hollandi, Spáni, Rússlandi og Noregi.

Aldursmet slegin á árinu

Mörg aldursmet voru slegin á árinu, samkvæmt Náttúru­fræði­stofnun. Tilkynnt var um skrofu sem merkt var fullorðin á hreiðri í Ystakletti árið 1991 og náðist aftur á hreiðri á sama stað 2017, 26 árum síðar. Fuglinn var þá að minnsta kosti 28 ára gamall. Tilkynnt var um grágæs sem merkt var sem merkt var sem ungi við Blönduós árið 2000 fannst dauð á sama stað haustið 2017, þá 17 ára og fjögurra mánaða.

Haförn sem merktur var sem ungi á norðan­verðu Snæfellsnesi sumarið í júlí 1993 fannst aðframkominn í V-Húna­vatnssýslu í janúar 2018, þá 24 og hálfs árs gamall. Honum var hjúkrað til lífs og sleppt aftur. Í Hampshire á Englandi var lesið á merki jaðrakans sem merktur var hér á landi að minnsta kosti tveggja ára gamall og því var fuglinn orðinn allavega 16 ára og 10 mánaða. Teista sem merkt var á hreiðri í júní 1995 var handsömuð í sömu hreiður­holu 2018 og hefur þá verið að minnsta kosti 27 ára og eins mánaðar gömul. Elsti auðnu­tittlingurinn var merktur á Akureyri sem full­vaxinn í desember 2011. Hann náðist á sama stað, orðinn að minnsta kosti sjö ára og sex mánaða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár