Annar flugmaðurinn komst ekki inn í stjórnklefann, reyndi að brjóta niður hurðina

Annar flug­mannanna sem flaug Germanwings-flug­vélinni sem hrapaði á þriðjudag var læstur úti úr flug­stjórnar­klefa vélarinnar. Á upptöku úr flug­stjórnar­klefanum kemur fram að flug­maðurinn hafi reynt að brjóta hurðina niður til að komast inn í klefann. Þetta kemur fram í New York Times í dag.

Ekki vitað af hverju hann fór út úr klefanum


En liggur engin opin­ber skýr­ing fyrir um hvað olli því að Airbus A320 flug­vél Germanwings, dótt­ur­fé­lags Luft­hansa, sem var á leið frá Barcelona til Dus­seldorf hrap­aði í frönsku ölp­unum á þriðju­dag með þeim afleið­ingum að 150 manns lét­ust. Flugriti vél­ar­innar fannst í gær og í New York Times í dag er haft eftir rann­sak­anda sem starfar innan franska hers­ins sem hlustað hefur á upp­tökur úr flug­stjórn­ar­klefa vél­ar­innar að annar flug­mað­ur­inn hafi farið út úr flug­stjórn­ar­klef­anum. Þegar hann hafi ætlað að koma til baka þá hafi verið búið að læsa klef­anum. Sá sem stóð fyrir utan klef­ann hafi þá fyrst bankað rólega á hurð­ina án þess að fá svar. Hann hafi síðan barið fastar og fastar þangað til að „þú heyrir að hann er að reyna að brjóta hurð­ina niður“.

Sami heimildar­maður segir að það sé ekki vitað hvað hafi valdið því að flug­maðurinn fór úr flug­stjórnar­klefanum. Það liggi hins vegar fyrir að síðustu mínúturnar áður en að vélin hrapaði hafi hinn flug­maðurinn verið einn í flug­stjórnar­klefanum og að hann hafi ekki opnað hurðina þegar bankað var á hana.

Blaðið hefur einnig eftir heimildar­manninum að samtöl milli flug­mannanna tveggja framan af fluginu hafi verið mjög yfirveguð og róleg.

Tveggja mínútna rammi mikilvægastur


Flug­vélin féll úr 38 þús­und feta hæð í undir sex þús­und fet á innan við átta mín­útum. Segolene Royal, sem fer með sam­göngu­mál í frönsku rík­is­stjórn­inni, sagði á þriðju­dag að þeir atburðir sem hafi átt sér stað á milli 10:30 og 10:31 á stað­ar­tíma skipti sköpun varð­andi það sem gerst hafði. Flug­um­ferð­ar­stjórn hafi ekki getað náð sam­bandi við vél­ina á því tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár