Boko Haram rænir fjölda manns í Kamerún - hrikalegt ofbeldi

Íslömsku hryðjuverka­samtökin Boko Haram hafa rænt fjölda manns í Kamerún, nágrannríki Nígeríu, að því er fram kemur í frá breska ríkis­útvarpsins BBC. Ekki er vitað nákvæmlega hversu mörgum hryðjuverka­samtökin hafa rænt, en vitað er að fjöldi barna er á meðal þeirra sem hryðjuverka­samtökin hafa rænt.

Issa Tchiroma Bakary, upplýsinga­mála­ráðherra Kamerún, staðfesti við BBC að um 8o hús hefðu verið brennd til ösku og fólki rænt í þorpunum Maki og Mada, nyrst í Kamerún.

Boko Harama hafa farið um þorp í Nígeríu og nú Kamerún með hrikalegu ofbeldi að undan­förnu, en talið er að allt að tvö þúsund manns hafi látið lífið í árásum hryðjuverka­samtakanna á mörg þorp í norð­austurhluta Nígeríu undan­farna daga og vikur. Hafa mann­réttinda­samtök gagnrýnt sinnu­leysi alþjóða­samfélagsins vegna þessa.

UNICEF á Íslandi gerði þetta hrikalega ofbeldi, sem er ekki síst beint gegn börnum, að umtals­efni á vef sínum. Þar fordæmir Anthony Lake, framkvæmda­stjóri UNICEF, ofbeldið. „Allt að 2.000 saklaus börn, konur og eldri borgarar hafa verið myrt í Baga. Í Maiduguri voru ungar stúlkur sendar út í opinn dauðann með sprengjur límdar utan við sig. Og ekki má gleyma þeim 200 stúlkum sem var rænt frá fjöl­skyldum sínum og enn eru týndar. Þessar fregnir frá Nígeríu ættu að vera í brennidepli. Orðin ein geta ekki tjáð reiði okkar og hneykslan, né linað þjáningar þeirra sem búa við stöðugan ótta við ofbeldi í norður­hluta Nígeríu,“ bætir Lake við. „Þær fréttir sem okkur hafa borist undan­farna daga gefa skýrt til kynna við hverju má búast í fram­tíðinni í Nígeríu og við eigum ekki að láta þetta viðgangast,“ segir Lake.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár