„Ég er bara úti um allt“

Þorvaldur Hafdal Jónsson er í fimmta sæti á lista yfir tekju­hæstu einstak­lingana í Vestmanna­eyjum.

Þú ert í fimmta sæti í Vestmanna­eyjum, hvernig blasir það við þér?

Það blasir vel við mér. Ég flutti bara þangað í nóvember. Þannig að þetta passar ekki alveg. Ég var skráður í Hafnar­firði og flutti til Vestmanna­eyja í nóvember. 

Hvers vegna fluttir þú til Vestmanna­eyja í nóvember?

Til að fá léttara rými og betri aðstæður fyrir fjöl­skylduna. 

Og virkaði það?

Jájá. Það lítur þannig út. 

Frábært. Er ekki rétt að titla þig sem kerfis­stjóra DK hugbúnaðar?

Það er einn titill sem ég er með. 

Hvernig myndir þú titla þig sjálfur?

Það er eiginlega bara óskilgreint. 

Nú, hvernig þá?

Ég er bara úti um allt. 

Þannig að þú ert að vinna í fleiru en að vera kerfis­stjóri hjá DK hugbúnaði?

Já. forritari, netstjóri, kerfis­stjóri. Hjá DK. Ég er að sinna mörgum hlut­verkum þar. 

Þú ert nú með heildar­árstekjur 79 milljónir. Það er svolítið mikill peningur. 

Það er kannski út af því að ég átti part í fyrir­tækinu sjálfur sem var selt. 

Já, ég skil. Ég sé að þú ert með 55 milljónir í fjármagns­tekjuskatt, það myndi skýra það?

Já, það er skýringin. 

Þannig að þú seldir þinn hlut í fyirtækinu í fyrra?

Já, allt fyrir­tækið var selt í fyrra. Hundrað prósent sala í fyrra. 

Þannig að þeir sem eru hjá DK hugbúnaði eru á listanum þess vegna?

Já, þeir koma á listann núna á þessu ári og svo ekki meir. 

Heldur þú að þeir komi aldrei aftur?

Nei, ekki nema þeir fari að stofna sitt eigið fyrirtæki aftur og fari í svona. Þetta er búið að vera að byggjast upp síðan 1998. 

Af hverju var þá verið að selja?

Það snýst aðallega um það að þeir sem stofnuðu fyrir­tækið, þeir eru komnir á ákveðinn aldur og eru farnir að huga að eftirlauna­hlutanum. 

En hvað gerir þú núna þegar þú ert búinn að selja þinn hlut? Þú vinnur enn þá fyrir þá? 

Ég vinn enn þá hjá DK, það eru bara komnir nýir eigendur og þeir koma með nýjar áherslur. 

Þú ert með tæplega tvær milljónir á mánuði í tekjur. 

Það gæti alveg stemmt, ein og hálf, eitthvað svoleiðis. 

Hvernig er að vera með eina og hálfa milljón á mánuði í tekjur?

Það er bara allt í lagi. 

En hvað gerir maður við 79 milljónir?

Greiðir niður skuldir fyrst og fremst. 

Er það mikið sem þú skuldar? Fer mikill hluti af þessu í það?

Stór hluti hefur farið í að greiða niður lán og svoleiðis. Nátt­úrlega húsnæðislán, ég á sex börn. 

Vá. þannig að þú getur greitt húsnæðis­lánið niður alveg?

Ég get greitt stóran hluta niður. 

Geggjað. Er það ekki góð tilfinning?

Það er léttir að þurfa ekki að vera með allt þetta yfir sér. Það koma bara aðrir hlutir og svona í kringum þetta. Eins og er þá til dæmis endur­nýjuðum við bílana. 

Er eitthvað fleira sem þú ætlar að gera við peningana?

Nei, þetta er bara búið. Þetta er bara þannig upphæð. 

Hvernig finnst þér að vera á þessum lista með hinum skatta­kóngunum í Vestmanna­eyjum?

Það kemur mér á óvart. Menn eru búnir að vera að vinna að fyrir­tækjum í uppbyggingu alla sína ævi og svo fara þeir að selja sitt eins og með bátana og fyrir­tækin og annað slíkt. Þetta vefur upp á sig og byggir upp fjármagn. Ef fyrirtæki ganga vel þá er nátt­úrlega hugmyndin að það greiði arð. 

Þannig að þú ert svona nýju krakkinn á listanum í ár?

Yndislegt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samtöl við skattakónga

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár