HSBC í stórfelldum skattaundanskotum með heimsþekktu fólki

Svissneski bankinn HSBC aðstoðaði þúsundir manna um allan heim, en þó einkum í gegnum útibú í Bretlandi, við að skjóta fé undan skatti með því að fela peningalegar eignir fyrir skatta­yfirvöldum. Þetta sýna ítarleg frumgögn úr viðskipta­manna­gagnagrunni bankans, sem tölvunar­fræðingurinn Hervé Falciani, sem starfaði sem sérfræðingur hjá HSBC, komst yfir og lak til valinna fjölmiðla auk alþjóða­samtaka um rannsóknar­blaða­mennsku (International Consortium of Investigative Journalists). Hann komst yfir gögnin haustið 2007, flúði til Frakk­lands með lögregluna á hælunum og hefur síðan dvalið í Frakk­landi undir vernd yfirvalda þar. Árið 2010 beitti þáverandi fjármála­ráðherra Frakk­lands og núverandi framkvæmda­stjóri Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins, Christine Lagarde, sér fyrir því að gögnin yrðu notuð til þess að koma upp um franska skatt­svikara. Ákveðið var að höfða ekki mál gegn Falciani eftir að gögnin höfðu verið skoðuð og greind, og nýtur hann verndar á þeim forsendum.

Á meðal fjölmiðla sem hafa birt ítarlegar umfjallanir úr gögnunum eru The Guardian, Bild, Le Monde og rannsóknar­blaða­mennsku­þátturinn BBC Panorama. Meðal þess sem fram kemur í gögnunum er að sterk­efnað þekkt fólk, ekki síst sem tengist afþreyingar- og tísku­iðnaði, Formúlu 1 kapp­akstri og stjórn­málum, hafi kerfis­bundið svikið undan skatti með leyni­legum reikningum sem HSBC aðstoðaði við að koma upp og reka. Meðal þeirra sem þetta gerðu voru spænski Formúlu 1 ökuþórinn Fernando Alonso, fyrirsætan Elle McPherson, tónlistar­maðurinn Phil Collins, leikarinn Christan Slater og Hosnai Mubarak, fyrr­verandi einræðis­herra Egypta­lands, að því er fram kemur í Bild. Tugþúsundir annarra viðskipta­vina HSBC í London gerðu slíkt hið sama.

Phil Collins, tónlist­maðurinn þekkti, er einn þeirra sem skaut háum fjárhæðum undan skatti með hjálp HSBC.

Phil Collins, tónlistmaðurinn þekkti, er einn þeirra sem skaut háum fjárhæðum undan skatti með hjálp HSBC.
Phil Collins, tón­list­mað­ur­inn þekkti, er einn þeirra sem skaut háum fjár­hæðum undan skatti með hjálp HSBC.

Lögreglu­yfirvöld í Sviss, Frakk­landi, Bretlandi og víðar, eru nú að rannsaka þessi kerfis­bundnu skatta­undanskot HSBC og viðskipta­vina bankans, en í yfir­lýsingu sem bankinn sendi frá sér í gær, kemur fram að öll starfsemi bankans á sviði einka­banka­þjónustu hafi verið breytt frá því sem var, og ekkert þessu líkt sé nú gert. Þá hafi bankinn minnkað hópinn sem sé í þessari tegund einka­banka­þjónustu úr um 30 þúsund viðskipta­vinum í 10 þúsund.

Nýir stjórn­endur bankans hafi einnig tekið þessa þjónustu­þætti til gagn­gerðar endur­skoðunar á undan­förnum árum, eftir að yfirvöld fóru að spyrja spurninga sem byggðust á fyrr­nefndum gögnum, og hefur eigna­stýring viðskipta­vina í einka­banka­þjónustu verið minnkuð úr 78 milljörðum punda í 45 milljarða punda, sem jafn­gildir rúmlega 8.900 milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár