Þrír hafa lýst sig vanhæfa í dómnefnd sem metur næstu Landsréttardómara

Þrír aðal­menn eða vara­menn í dóm­nefnd um hæfi dóm­ara hafa lýst sig van­hæfa til að taka þátt í störfum hennar þegar kemur að mati á umsækj­endum setn­ingu eða skipun við Lands­rétt.

Nýverið aug­lýsti dóms­mála­ráðu­neytið eftir umsóknum um setn­ingu í tvö emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt og skipun í eitt emb­ætti við rétt­inn. Átta sóttu um setn­ingu í emb­ættin tvö og fjórir um skipun í emb­ætti Lands­rétt­ar­dóm­ara.

Dómnefnd um hæfi dóm­ara, sem í sitja fimm manns, hefur fengið allar umsókn­irnar til með­ferðar en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu hafa þrír aðal­menn eða vara­menn lýst sig van­hæfa til að taka þátt í störfum hennar. Kristín Bene­dikts­dóttir og vara­maður hennar Valtýr Sig­urðs­son hafa lýst yfir van­hæfi sínu vegna umsókna um setn­ingu í emb­ættin. Þess í stað hefur Reimar Pét­urs­son, lög­maður og fyrr­ver­andi for­maður Lög­manna­fé­lags Íslands, verið settur ad hoc í það mál að til­lögu Hæsta­réttar.

Þá hefur Ragn­heiður Harð­ar­dóttir lýst sig van­hæfa vegna umsókna um skipun í emb­ættið og Halldór Hall­dórs­son, vara­maður hennar, getur ekki tekið þátt í störfum nefnd­ar­innar í sama máli vegna for­falla. Ráðu­neytið hefur óskað til­nefn­ingu frá dóm­stóla­sýsl­unni um aðila til að taka sæti í nefnd­inni ad hoc til með­ferðar þess máls. „Að öðru leyti hefur ráðu­neytið ekki upp­lýs­ingar um annað en að reglu­legir aðal- eða vara­menn fjalli um umsóknir í báðum málum,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Staða losnaði við skipun í Hæstarétt

Alls sóttu fjórir um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt sem var aug­lýst laust til umsóknar 3. jan­úar síð­ast­lið­inn. Umsókn­ar­frestur var til síð­asta mánu­dags, 20. jan­ú­ar. Skipað verður í emb­ættið hið fyrsta eftir að dóm­nefnd um hæfni umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti hefur lokið störf­um.

Umsækj­endur um emb­ættið eru Ásmundur Helga­son, dóm­ari við Lands­rétt, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, dóm­ari við Lands­rétt, Sandra Bald­vins­dóttir hér­aðs­dóm­ari og Ást­ráður Har­alds­son hér­aðs­dóm­ari.

Um er að ræða stöðu við Lands­rétt sem losn­aði þegar Ing­veldur Ein­ars­dóttir var skipuð dóm­ari við Hæsta­rétt í des­em­ber.

Alls voru 15 dóm­arar upp­haf­lega skip­aðir í Lands­rétt. Hæf­is­nefnd 15 umsækj­endur hæf­asta til að setj­ast í þau emb­ætt­i. ­Sig­ríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­­mála­ráð­herra, ákvað hins vegar að taka út fjóra þeirra sem hæf­is­­nefndin hafði metið á meðal 15 hæf­­ustu og setja aðra, sem nefndin hafði metið minna hæfa, inn á lista yfir þá sem hún vildi skipa. Alþingi sam­­þykkti svo lista Sig­ríð­­ar. Þeir fjórir sem hæf­is­nefndin taldi ekki á meðal hæf­ustu umsækj­enda, en Sig­ríður bætti við á list­ann á kostnað ann­arra, vor­u Ragn­heiður og Ásmundur Helga­­­­son auk ­Arn­­­­fríðar Ein­­­­ar­s­dótt­ur ogJóns Finn­­­­björns­­­­son­ar.

Í kjöl­farið hafa íslenskir dóm­stólar úrskurðað að Sig­ríður hafi brotið stjórn­sýslu­lög með atferli sínu. Auk þess kom­st Mann­rétt­inda­­dóm­­stóll Evr­­ópu að þeirri nið­­ur­­stöðu í mál­inu í mars í fyrra að dóm­­ar­­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­­lega skip­að­ir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­­með­­­ferð. Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sig­ríður af sér emb­ætti dóms­­mála­ráð­herra.

Þegar búið að skipa einn nýjan dómara og auglýsa eftir setningu

Einn þeirra ell­efu sem voru lög­­­lega skip­aðir í Lands­rétt, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­­son, sagði starfi sínu lausu í fyrra­vor og greindi frá því að hann hygð­ist setj­­­ast í helgan stein.

Staða hans var aug­lýst og umsókn­­ar­frestur rann út síðla í maí 2019. Alls sóttu þá átta um stöð­una, þar af tveir sitj­andi dóm­­arar í Lands­rétti, Ásmundur og Ragn­heið­ur. Þau eru bæði á meðal þeirra fjög­­­urra lands­rétt­­­ar­­­dóm­­­ara sem hafa ekki fengið að dæma í málum frá því að nið­­­ur­­­staða Mann­rétt­inda­­­dóm­stóls Evr­­­ópu í Lands­rétt­­­ar­­­mál­inu var birt. Mál­inu var skotið til yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins og mál­flutn­ingur fyrir honum fer fram í næsta mán­uð­i.

Eiríkur Jóns­son, þá laga­pró­fessor við Háskóla Íslands og einn þeirra sem Sig­ríður hafði ákveðið að skipa ekki þrátt fyrir að hæf­is­nefnd hefði metið hann sjö­unda hæf­astan allra umsækj­enda í upp­runa­lega skip­un­ar­ferl­inu, var þá skip­aður í emb­ætt­ið.

Ásmundur og Ragn­heiður eru bæði aftur á meðal umsækj­enda nú, þrátt fyrir að vera þegar skip­aðir dóm­arar við rétt­inn en mega ekki starfa þar vegna þess að upp­haf­leg skipun þeirra var ólög­mæt.

Þann 20. des­em­ber 2019 aug­lýsti dóms­­mála­ráðu­­neytið laus til setn­ingar tvö emb­ætti dóm­­ara við Lands­rétt og rann umsókn­­ar­frestur út þann 6. jan­úar síð­­ast­lið­inn. Á vef Stjórn­­­ar­ráðs­ins segir að sett verði í emb­ættin hið fyrsta eftir að dóm­­nefnd um hæfni umsækj­enda um dóm­­ara­emb­ætti hafi lokið störf­­um.

Um er að ræða emb­ætti þeirra Ásmundar og Jóns Finn­­björns­­son­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár