„Eigum við ekki að ræða um orðspor?“

Þing­maður Við­reisnar var harð­orður á Alþingi í morgun þegar hann spurði fjár­mála­ráð­herra hvort hægt væri að tala um traust og heil­brigt eign­ar­hald eftir atburða­rás­ina í kringum útboð á hlut Íslands­banka.

Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar.
Sigmar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

„Má ekki ræða um orð­sporið? Er það í alvöru þannig? Á ekki að fara fram neitt mat á því, eigum við ekki að velta því neitt fyrir okkur, þegar við erum að tala um traust og heil­brigði, heil­brigt eign­ar­hald í lok­uðu útboði þar sem menn eru hand­valdir, hvert orð­sporið er og hverjir það eru sem kaupa?“

Þetta sagði Sigmar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar þegar hann beindi fyr­ir­spurn sinni að Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í þing­inu í morgun. Mikill kurr hefur verið í þing­mönnum stjórn­ar­and­stöð­unnar síðan fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið birti lista yfir kaup­endur í Íslands­banka í gær.

Bjarni sagði meðal ann­ars að það væri sjálf­sagt að ræða hlut­ina. „Það er lang­best að Rík­is­end­ur­skoðun fari yfir fram­kvæmd­ina í heild sinni, svari spurn­ingum til dæmis um það hvort við höfum gerst sek um að hand­velja við fram­kvæmd þessa útboðs ein­staka fjár­festa.“

Sigmar sagði að þegar banki er seldur í eigu þjóðar sem er skað­brennd eftir heilt banka­hrun þá væri traust algjört lyk­il­orð. „Allir hafa verið sam­mála um að mark­miðið sé traust og heil­brigt eign­ar­hald. Þetta hefur verið end­ur­tekið aftur og aftur og aftur.“

Benti hann á að síð­ustu daga hefðu verið uppi miklar efa­semdir um traustið vegna þess að Banka­sýslan teldi að banka­leynd ætti að ríkja um kaup­endur, að reglu­verkið væri þannig að brenndri þjóð sem selur bank­ann sinn kæmi það hrein­lega ekki við hverjir kaupa. „Stjórn­ar­for­maður Banka­sýsl­unnar fylgdi þessu svo eftir í við­tali og sagði að þetta mætti skoða í næsta útboði ef menn teldu mik­il­vægt að vita hver keypti hvað. Ég ætla að end­ur­taka orð Banka­sýsl­unnar um þessa sölu á eign okkar allra í lok­uðu útboði fyrir útvalda: Ef menn telja það mik­il­vægt að vita hver keypti hvað.“

Traustið hvarf með gegnsæinu

Spurði Sigmar hvernig það mætti vera að þetta við­horf væri uppi innan Banka­sýsl­unnar að loknu lok­uðu útboði. „Af hverju bjó rík­is­stjórnin ekki svo um hnút­ana í und­ir­bún­ingi söl­unnar að þegar Banka­sýslan hand­velur kaup­endur þá sé það ófrá­víkj­an­legt skil­yrði í útboð­inu að þjóðin fái að vita um alla kaup­endur? Fjár­mála­ráðu­neytið birti svo list­ann í gær, sem var mjög gott, en því miður fór það svo að birt­ing list­ans í nafni gegn­sæis, til að auka traust, varð til þess að traustið hvarf með gegn­sæ­inu.

Hvernig í ósköp­unum kom­ast menn að þeirri nið­ur­stöðu að það efli traust á fjár­mála­kerf­inu og áfram­hald­andi sölu fjár­mála­stofn­ana þegar vænn hluti hand­val­inna kaup­enda eru per­sónur og leik­endur úr banka­hrun­inu? Eigum við að fyll­ast trausti á heil­brigðu eign­ar­haldi þegar dæmi eru um hand­valda kaup­endur sem sæta rann­sókn yfir­valda eða hafa jafn­vel fengið dóm? Er sátt og traust vegna þeirrar stað­reyndar að stórum útgerð­ar­að­ilum, sem berj­ast hart og af alefli gegn því að borga sann­gjarnt og eðli­legt verð fyrir að veiða fisk­inn sem þjóðin á, er boðið og þiggja með þökkum að fá nú að kaupa eign þjóð­ar­innar, nærri 2 millj­arða, með afslætti? Getum við enn þá talað um traust og heil­brigt eign­ar­hald eftir þessa atburða­rás?“ spurði þing­mað­ur­inn.

Ríkið sætti sig við að eignarhald gæti þróast með ýmsum hætti eftir að skráningu er lokið

Bjarni svar­aði og sagði að með ákvörðun um að skrá bank­ann í kaup­höll, setja hann á almennan markað, þá væri ríkið að taka með­vit­aða ákvörðun um að sleppa hend­inni af eign­ar­hald­inu og sætta sig við að það gæti þró­ast með ýmsum hætti eftir að skrán­ingu er lokið.

„Í útboð­inu var mik­il­vægt að það væru til staðar almennar gegn­sæjar reglur sem tryggðu að eitt gengi yfir alla. Spurt er: Er eign­ar­haldið á Íslands­banka traust og heil­brigt? Tví­mæla­laust, ríkið með 42,5 pró­sent eign­ar­hlut, líf­eyr­is­sjóðir, stórir alþjóð­legir og inn­lendir lang­tíma­fjár­festar næstir, fjöld­inn allur af íslenskum almenn­ingi og öðrum einka­fjár­festum með smá­brot af eign­inni.

Þetta er nákvæm­lega það sem er æski­legt, heil­brigt og eft­ir­sókn­ar­vert. Það sem við hefðum helst viljað. Svo geta menn farið í þann leik hér að fara að tína út ein­staka aðila, eins og maður mátti svo sem vænta af Við­reisn­ar­þing­manni að myndi ger­ast. Það má ekki vera útgerð­ar­að­ili, við erum á móti útgerð­ar­að­ilum, fjand­inn hafi það, ekki leyfa þeim að fjár­festa í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Við skulum bara hafa í huga hér hina almennu reglu sem er þessi: Þegar menn vilja fara með virkan eign­ar­hlut í fjár­mála­fyr­ir­tæki, sem sagt 10 pró­sent eða meira, þá þurfa menn að fara í gegnum nál­ar­auga Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Þeir sem fara með smá­hluti eða allt að 10 pró­sent þurfa ekki að upp­fylla hin sér­stöku skil­yrði. Þeir eru eins og allir aðrir Íslend­ingar, að því gefnu að þeir séu hæfir í þessu útboði eða ef þeir vilja kaupa á mark­aði þá geta þeir það. Maður sem situr í fang­elsi má kaupa hluta­bréf,“ sagði Bjarni.

Spurði hann hvort Sigmar vildi hafa það ein­hvern veg­inn öðru­vísi.

Eigum við ekki að ræða um heilbrigði og heilbrigt eignarhald?

Sigmar tók aftur til máls og sagði að orðið orð­spor kæmi fyrir í öllum hug­leið­ingum um aðdrag­anda þess­arar sölu.

„Má ekki ræða um orð­sporið? Er það í alvöru þannig? Á ekki að fara fram neitt mat á því, eigum við ekki að velta því neitt fyrir okkur, þegar við erum að tala um traust og heil­brigði, heil­brigt eign­ar­hald í lok­uðu útboði þar sem menn eru hand­valdir, hvert orð­sporið er og hverjir það eru sem kaupa?“ spurði hann.

Varðandi það sem fjár­mála­ráð­herra kom inn á að það sem síðan ætti að ger­ast á eft­ir­mark­aði þar sem ekki yrði veittur neinn afsláttur af eigum rík­is­ins í útboði af þessu tagi þá sagði Sigmar að allir sæju það í hendi sér að mik­ill munur væri á þessu tvennu.

„Og svo koma þessir orða­leppar sem hér eru nefndir aftur og aftur til að drepa málum á dreif. Það er ekki talað um afslátt. Stjórn­ar­for­maður Banka­sýsl­unnar talar um frá­vik. Þetta er frá­vik en ekki afsláttur, eins og nið­ur­staðan, þegar verið er að selja eigur þjóð­ar­innar, sé ekki sú sama. Eigum við ekki að ræða um orð­spor? Eigum við ekki að ræða um heil­brigði og heil­brigt eign­ar­hald? Eigum við að gera grein­ar­mun á lok­uðu útboði þar sem menn eru hand­valdir og því sem ger­ist síðan á eft­ir­mark­aði? Þar er ríkið búið að sleppa hönd­unum. Það sleppir ekki í hönd­unum í útboð­inu sjálfu.

Þessar skýr­ingar hæst­virts fjár­mála­ráð­herra sem koma fram eftir að þessi maka­laust listi er birtur – þar sem meira að segja fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar fær að kaupa fyrir rúma milljón með frá­viki eða afslætti. Eigum við ekki að spyrja spurn­inga um þetta? Eigum við ekki að tala um að þetta sé eðli­legt eða óeðli­legt? Er það bannað?“ spurði hann.

Segir að enginn hafi verið handvalinn

Bjarni svar­aði í annað sinn og sagði að það væri sjálf­sagt að ræða þetta.

„Hver er að stoppa umræð­una? Það sem hátt­virtur þing­maður gerir er að hann fellur á próf­inu þegar hann segir hand­valdir, þegar hann segir útvaldir. Það er þar sem hann fellur á próf­inu og allt sem hann segir eftir það er ómark­tækt vegna þess að hér var eng­inn hand­val­inn. Það sem var ákveðið að gera var að segja: Hæfir fjár­festar geta tekið þátt. Það er sala sem stendur yfir núna. Allir sem buðu gátu fengið að vera með eftir almennum reglum, eng­inn hand­val­inn, ein­göngu þeir sem gáfu til­boð komu til greina og þeir þurftu að upp­fylla skil­yrði um verð og að vera hæfir fjár­festar. Þannig að hvar er hand­valið, hátt­virtur þing­maður?

Sá sem heldur þessu fram er að reyna að gera þetta tor­tryggi­legt og þess vegna segi ég: Það er lang­best að Rík­is­end­ur­skoðun fari yfir fram­kvæmd­ina í heild sinni, svari spurn­ingum til dæmis um það hvort við höfum gerst sek um að hand­velja við fram­kvæmd þessa útboðs ein­staka fjár­festa. Kannski væri ágætt líka að Rík­is­end­ur­skoðun svar­aði því hvort fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar sé nægi­lega góður ein­stak­lingur til að fá að taka þátt eins og aðrir Íslend­ingar. En hann er sem sagt á lista Við­reisnar yfir fólk sem ekki mátti vera með,“ sagði Bjarni að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár