Vill fá Ríkisendurskoðun til að skoða Íslandsbankasöluna

Fjár­mála­ráð­herra leggur til að Rík­is­end­ur­skoðun fari yfir útboðið á hlut í Íslands­banka. Þing­flokks­for­maður Pírata spyr af hverju ætti að leyfa ráð­herr­anum að halda áfram að skipta sér af rík­is­sjóði þegar föður hans tókst að kaupa hlut í bank­anum.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra telur það best að fá Rík­is­end­ur­skoðun til þess að taka út fram­kvæmd útboðs á hlut rík­is­ins í Íslands­banka og fara yfir það með þing­inu með hvaða hætti lög og fyr­ir­mæli voru fram­kvæmd við útboðið. „Ég tel að miðað við það sem ég veit að það muni bara koma vel út fyrir alla fram­kvæmd­ina.“

Þetta kom fram í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun. Halldóra Mogensen þing­flokks­for­maður Pírata spurði ráð­herr­ann af hverju þingið ætti að leyfa fjár­mála­ráð­herra að halda áfram að selja Íslands­banka eða skipta sér yfir höfuð af rík­is­sjóði þegar föður Bjarna tókst að kaupa hlut í bank­anum ásamt fjölda fólks með vafa­sama for­tíð frá banka­hrun­inu.

Halldóra hóf fyr­ir­spurn sína á því að benda á að nú lægi fyrir listi kaup­enda í nýaf­stöðnu útboði á Íslands­banka. Reifaði hún atburða­rás­ina og benti á að í útboð­inu hefði verið hópi fjár­festa boðið að kaupa eignir rík­is­ins á afslætti. Þann 10. febr­úar hefði ráð­herra gefið út grein­ar­gerð um fyr­ir­ætl­anir um sölu bank­ans þar sem meðal ann­ars voru reifuð mark­mið, sölu­að­ferð og áætlað sölu­ferli bank­ans. Þann 18. mars hefði fjár­mála­ráð­herra sent Banka­sýsl­unni bréf þar sem hann hefði falið henni að fram­kvæma útboð á bréfum í Íslands­banka „að höfðu sam­ráði við ráð­herra um tíma­setn­ingar, skipt­ingu áfanga og sölu­að­ferðir“.

Af hverju fá einstaklingar með „vægast sagt vafasama fortíð úr bankahruninu“ að kaupa hlut í bankanum með afslætti?

„Yfirlýst mark­mið með að veita lok­uðum hópi fjár­festa þennan afslátt væri að finna trausta lang­tíma­fjár­festa sem fram­tíð­ar­eig­endur bank­ans. Tekin var með­vituð ákvörðun um að veita þennan afslátt og nota lokað útboð til að laða að stofn­fjár­festa sem lang­tíma­eig­endur bank­ans.

Ráðherra sem ábyrgð­ar­að­ili þessa útboðs hefði auð­veld­lega getað sett reglur eða ramma um það hvernig fjár­festum skyldi hleypt að en þess í stað var um að ræða nokk­urs konar villta vestur þar sem fimm sölu­fyr­ir­tæki tóku kvöld­stund í að hringja í sína upp­á­halds­fjár­festa. Nið­ur­staðan er afar sund­ur­leitur listi fjár­festa þar sem ein­hverjir tugir ein­stak­linga eru að fjár­festa fyrir brot úr pró­senti,“ sagði Halldóra.

Spurði hún því ráð­herr­ann hvað hefði breyst frá því að ráð­herra gaf út yfir­lýst mark­mið um að finna stóra hæfa lang­tíma­fjár­festa. „Hvers vegna sjáum við fjár­festa sem eru að kaupa brot úr pró­senti í bank­anum með afslætti? Og af hverju fá ein­stak­lingar með væg­ast sagt vafa­sama for­tíð úr banka­hrun­inu að kaupa hlut í bank­anum með afslætti?“ spurði hún.

Enginn handvalinn – þetta var opið útboð

Bjarni svar­aði og sagð­ist fyrst vilja ræða það sem Halldóra kall­aði afslátt í útboð­inu og benda á það að hér fór fram sala á rúm­lega 50 millj­arða hlut sem jafn­gildir um 300 við­skipta­dögum með hluta­bréf í bank­anum, fimm­föld velta á mark­aði með hluta­bréf í Íslands­banka frá ára­mótum.

„Spurn­ingin sem var uppi þennan dag var þessi: Hvert er rétta verðið fyrir sölu í dag á 22,5 pró­sent hlut? Það er spurn­ingin sem var uppi. Það fékkst svar við henni með ríkri þátt­töku mark­aðs­að­ila, gríð­ar­lega mik­illi eft­ir­spurn í útboð­inu og svarið var að þeim mark­miðum sem eru skrifuð út í lög og voru uppi hér í þing­inu af þing­nefndum og voru til grund­vallar sem við­mið af minni hálfu gagn­vart Banka­sýsl­unni – þessum mark­miðum öllum mátti best ná með því að gengið væri 117. Enda sjá það allir í hendi sér að ef við hefðum sett inn í Kaup­höll­ina 50 millj­arða hlut þá hefði fram­boðs­hliðin auð­vitað bara leitt til þess að verð í bank­anum hefði hrunið. Þegar við skoðum sam­an­burð við önnur dæmi, við getum notað Arion banka hér innan lands eða önnur erlend dæmi, þá sjáum við að frá­vikið frá síð­asta mark­aðs­gengi var lítið í þessu til­viki. Þetta er aðeins um það sem hátt­virtur þing­maður kallar afslátt.

Það var engum sér­stak­lega hleypt að í þessu ferli heldur var það ljóst frá upp­hafi að þeir sem teld­ust hæfir fjár­festar máttu taka þátt. Hvað er hæfur fjár­festir? Það er fjár­festir sem hefur næga reynslu og þekk­ingu til þess að það megi selja honum án þess að það sé gefin út útboðs­lýs­ing. Allir þeir sem gáfu sig fram, lýstu áhuga á því að taka þátt í þessu útboði, sem var opin­bert af hálfu Banka­sýsl­unnar, og upp­fylltu skil­yrði um að vera hæfir sem sagt ann­ars vegar og voru reiðu­búnir að greiða verðið sem Banka­sýslan á end­anum lagði til og ég sam­þykkti, þeir fengu að taka þátt. Enginn hand­val­inn. Þetta var opið útboð,“ sagði Bjarni.

Af hverju ætti þingið að leyfa Bjarna að halda áfram að selja bankann?

Halldóra kom aftur í pontu og sagði að afsláttur væri fyrir stóra fjár­festa, til að laða að stórri áhættu­samri fjár­fest­ingu, ekki fyrir Lyf og heilsu til að kaupa banka eða föður fjár­mála­ráð­herra.

„Í fyrsta útboð­inu á bank­anum tap­aði rík­is­sjóður 30 millj­örðum. Í seinna útboð­inu mistókst að finna hæfan fram­tíð­ar­eig­enda en það tókst að selja föður fjár­mála­ráð­herra hlut í bank­anum með afslætti ásamt fjölda manns með mjög vafa­sama for­tíð frá banka­hrun­inu. Að gef­inni þess­ari reynslu, af hverju í ósköp­unum ætti þingið að leyfa hæst­virtum ráð­herra að halda áfram að selja þennan banka eða skipta sér yfir höfuð af rík­is­sjóði?“ spurði hún.

Telur að skoðun muni koma vel út

Bjarni svar­aði í annað sinn og sagði að stjórn­völd hefðu lagt sig fram um það að tryggja gagn­sæi um alla þessa með­ferð. „Þess vegna voru þessi sam­skipti við þingið og þess vegna meðal ann­ars lagði ég mikla áherslu á það, ef lög ekki hindr­uðu, að birta lista yfir þá sem fengu úthlutun í þessu útboði. Um það giltu almennar reglur.“

Hann vildi vekja athygli á því vegna þess að Halldóra hefði skoð­anir á ein­stökum kaup­endum og teldi þá mis­vel til þess fallna að fara með eigna­hlut í fjár­mála­fyr­ir­tæki að lög kvæðu á um það að ef ein­stak­lingar eða lög­að­ilar vilja fara með virkan eign­ar­hlut, eins og það heitir í lögum, yfir 10 pró­sent þá yeðu þeir að fara í gegnum nál­ar­auga.

„Það gildir ekki fyrir smáa eign­ar­hluti. Þar gilda aðrar reglur. Ég ætla að segja þetta um fram­haldið: Vegna þeirrar gagn­rýni sem fram hefur komið þá held ég að það sé lang­best – til þess einmitt að tryggja að það sé ekk­ert í skugg­anum og það sé vel farið yfir þá fram­kvæmd sem við höfum hér nú nýgengið í gegnum – að við fáum Rík­is­end­ur­skoðun til þess að taka út fram­kvæmd útboðs­ins og fara yfir það fyrir þingið með hvaða hætti lög og fyr­ir­mæli voru fram­kvæmd við þetta útboð. Ég tel að miðað við það sem ég veit að það muni bara koma vel út fyrir alla fram­kvæmd­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár