Einhver verði dreginn til ábyrgðar fyrir stjórnlaust útboð á ríkiseign

Kristrún Frosta­dóttir sakar fjár­mála­ráð­herra um að vera á sjálfs­stýr­ingu í kjöl­far þess sem hún kallar stjórn­laust útboð á rík­is­eign og segir hann eiga að hleypa öðrum að, hafi hann ekki áhuga á því að taka póli­tíska for­ystu í mál­inu.

Kristrún sagði ekkert að marka í tilsvörum Bjarna um sölu Íslandsbanka.
Kristrún sagði ekk­ert að marka í til­svörum Bjarna um sölu Íslands­banka. Mynd: Bára Huld Beck

Tals­verður hiti var í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun og var aðal­um­ræðu­efnið útboð Banka­sýslu rík­is­ins á hlut í Íslands­banka. Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Kristrún Frosta­dóttir, kall­aði eftir því að fjár­mála­ráð­herra sýndi póli­tíska for­ystu í mál­inu þar sem þjóðin væri búin að missa trúna á sölu­ferl­inu, þar sem aðilar hafi fengið frítt spil til að selja almenn­ings­eign á afslætti, sölu­að­ilum hafi verið borg­aðar him­in­háar þókn­anir til þess að hjálpa spá­kaup­mönnum að skot­græða á rík­is­eign.

[links]Sagði Kristrún óljóst hvernig kaup­endur hefðu verið valdir; þeirra á meðal hefðu verið aðilar með skelfi­lega sögu af banka­rekstri. Sakaði hún fjár­mála­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­son, sem fyr­ir­spurnin beind­ist að, um skort á auð­mýkt, vald­hroka og for­ystu­leysi og sagði að væri hann svo áhuga­laus um málið, sem hún kall­aði stjórn­laust úboð á rík­is­eign, ætti hann að huga að því hleypa öðrum að. Ekki væri hægt að sinna einu æðsta emb­ætti þjóð­ar­innar með hálfri hendi, algjör skortur væri á auð­mýkt og vald­hroki hafi ein­kennt ferlið.

[adspot]Nauð­syn­legt væri að draga þá til ábyrgðar sem stóðu að þeirri spill­ingu sem hún sagði hafa átt sér stað við útboðið. „Ef hæst­virður ráð­herra getur ekki sýnt for­ystu í þessu máli, þá hefur hann ekki erindi lengur í póli­tík.“

Vilji ekkert frekar en að öllum spurningum sé svarað

Í svari sínu sagð­ist Bjarni, líkt og allir þeir sem komið hafi um ákvörð­un­inni um sölu­ferlið, vilja ekk­ert frekar en að öllum spurn­ingum yrði svarað. Sagði hann að gagn­rýni þing­manna kæmi honum spánskt fyrir sjónir miðað við hversu opið sölu­ferlið hafi verið og spurði hvers vegna þessi sjón­ar­mið hefðu ekki komið fram í aðdrag­anda söl­unnar.

Þá sagð­ist Bjarni ætla að hafa frum­kvæði að því að Rík­is­end­ur­skoðun yrði falið að fara yfir fram­kvæmd útboðs­ins. Hann hefði fulla trú að því að það myndi stand­ast skoðun. Þá mætti ekki gleyma heild­ar­nið­ur­stöðu útboðs­ins.

Sagði Kristrún afleitt að hlusta á eft­irá­skýr­ingar ráð­herra sem hefði sagt sölu­ferlið opið; vilj­andi hefði verið ráð­ist í lokað útboð þar sem almenn­ingi var ekki hleypt að. Þjóðin hefði haldið að verið væri að veita ákveðnum aðilum með sterkt bak­land, sterka fjár­hags­lega getu og trú­verð­ug­leika aðgang að kaupum bank­ans.

Þá gæti hún ekki séð að ráð­herra væri að taka for­ystu í mál­inu, hann færi undan í sínum skýr­ingum. „Það er ekk­ert að marka það sem hér er sagt,“ end­aði Kristrún ræðu sína og hlaut við það und­ir­tektir ann­arra þing­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár