Hagfræðingar vissir um að Seðlabanki Bandaríkjanna hækki vexti í desember

Seðla­banki Banda­ríkjanna hefur haldið vöxtum í 0,25 prósentu­stigum í meira en sjö ár. Nú veðja fjár­festar á að hækkunar­ferli sé að hefjast.

Um 92 prósent þeirra hagfræðingar sem Wall Street Journal spurði álits á því, hvort Seðla­banki Banda­ríkjanna muni hefja hækkunar­ferli á stýri­vöxtum í desember, telja að bankinn muni gera það. Þar með mun ljúka rúmlega sjö ára tímabili þar sem bankinn hefur haldið stýri­vöxtum nálægt núlli, eða í 0,25 prósentum.

Ekkert er þó gefið í þessum efnum, þar sem Seðla­bankinn hefur allt þetta ár gefið vísbendingar um að hækkun á vöxtum sé framundan, án þess að nefna nákvæmlega hvenær hækkunar­ferlið geti hafist.

Janet Yellen, seðla­bankastjóri Banda­ríkjanna, hefur sagt að bankinn þurfi að horfa til margra þátta þegar metið er hvenær rétt sé að hækka vexti. Staða efnahags­mála í Banda­ríkjunum hefur farið batnandi á undan­förnum misserum, en atvinnu­leysi er komið niður í fimm prósent og útlit er fyrir að hagvöxtur verði á milli tvö til þrjú prósent.

Það er helst þróun mála á alþjóða­mörkuðum sem hefur gert ákvörðun um tíma­setningu vaxta­hækkunar snúna. Þannig hefur Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn hvatt seðla­bankanum til þess að horfa vel til aðstæðna á heims­mörkuðum þegar tíma­setning vaxta­hækkunar er ákveðin.

Mörg ríki, ekki síst þau sem eiga mikið undir útflutningi á olíu og ýmsum hrávörum, súpa nú seyðið af mikilli verð­lækkun á mörkuðum. Þannig hefur heims­markaðsverð á olíu lækkað um tæplega 60 prósent á um tólf mánuðum, með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á efnahag landa sem eiga mikið undir olíu­geiranum. Það eru meðal annars ríki eins og Rússland, Noregur, Brasilía og Nígería.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár