„Núverandi fyrirkomulag er algjörlega ófullnægjandi“

Þing­maður Við­reisnar og áheyrn­ar­full­trúi í for­sætis­nefnd segir að fyr­ir­komu­lag á end­ur­greiðslu útlagðs kostn­aðar þing­manna sé allt of laust í reip­unum hjá Alþingi.

Þorsteinn Víglundsson.
Þor­steinn Víglunds­son. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Nið­ur­staða for­sætis­nefndar Alþingis, að hún telji ekki skil­yrði til staðar fyrir því að fram fari almenn rann­sókn á end­ur­greiddum akst­urs­kostn­aði þing­manna, felur ekki í sér neina stað­fest­ingu þess að fyr­ir­komu­lag þess­ara mála sé í lagi á þing­inu. Þetta segir Þor­steinn Víglunds­son þing­maður Við­reisnar og áheyrn­ar­full­trúi í nefnd­inni á Facebook-síðu sinni í dag.

Í frétt Kjarnans frá því í gær kemur fram að for­sætis­nefnd Alþingis telji ekki skil­yrði til staðar fyrir því að fram fari almenn rann­sókn á end­ur­greiddum akst­urs­kostn­aði þing­manna. Þá hefur for­sætis­nefnd kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að sú athugun sem þegar hefur farið fram á end­ur­greiddum akst­urs­kostn­aði Ásmundar Frið­riks­son­ar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ásamt skýr­ingum Ásmundar á akstr­in­um, „leiði til þess að ekk­ert hafi komi fram sem gefi til kynna að hátt­erni hans hafi verið and­stætt siða­reglum fyrir alþing­is­menn.“

Nefndin telur einnig að ekki hafi komið fram neinar upp­lýs­ingar eða gögn sem sýni að til staðar sé grunur um að refsi­verð hátt­semi hafi átt sér stað við fram settar kröfur um end­ur­greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar sem kæra beri sem meint brot til lög­reglu. Þetta kemur fram í svari for­sætis­nefndar við erindi Björns Levís Gunn­ars­son­ar, þing­manns Pírata. Undir það skrifar Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is.

Björn Leví skil­aði inn end­­ur­­teknu erindi til for­­sæt­is­­nefndar í lok októ­ber þar sem kom fram að hann teldi að rann­saka þyrfti allar end­­ur­greiðslu­­færslur á akst­­ur­s­­kostn­aði þing­­manna. Í þetta skipt­ið bað hann sér­­stak­­lega um að end­­ur­greiðslur á akst­­ur­s­­kostn­aði Ásmundar Frið­­riks­­son­­ar yrðu rann­sak­að­­ar.

Þor­steinn segir að það væri kannski nær lagi að segja að reglur um þessi mál væru svo loðnar og óljósar að í raun sé engin leið að full­yrða hvort þing­menn séu að fara eftir þeim eða ekki.

„Stað­reyndin er sú að fyr­ir­komu­lag á end­ur­greiðslu útlagðs kostn­aðar er allt of laust í reip­unum hjá Alþingi. Með þessum orðum er ég ekki að leggja neinn dóm á greiðslur til ein­stakra þing­manna, heldur ein­fald­lega benda á að núver­andi fyr­ir­komu­lag er algjör­lega ófull­nægj­andi að mínu viti,“ segir hann.

Björn Leví á hrós skilið

Þor­steinn telur alvar­leg­ast að í núver­andi fyr­ir­komu­lagi sé ekki að finna neina afmörkun milli per­sónu­legs kostn­aðar vegna þátt­töku í próf­kjörum eða kosn­inga­bar­áttu. „Það hlýtur að vera í hæsta máta óeðli­legt að þing­menn geti háð kosn­inga­bar­áttu sína á kostnað þings­ins. Aðstöðu­mun­ur­inn gagn­vart öðrum fram­bjóð­endum sem ekki eiga sæti á þingi er aug­ljós og mjög óeðli­legur.“

Hann segir það vera löngu tíma­bært að taka þessar reglur til end­ur­skoð­unar. „Við alþing­is­menn eigum ekki að vera með óút­fylltan tékka frá Alþingi til fjár­út­láta vegna fund­ar­sókna og ferða­laga. Það er þvert á móti mjög eðli­legt að mínu viti að þar séu settar mjög skýrar leik­reglur um hvað og hversu mikið eðli­legt sé að þingið end­ur­greiði.

Til að kór­óna allt njóta þing­menn í raun skatt­fríð­inda af greiðslum sem sam­kvæmt hefð­bund­inni túlkun Rík­is­skatt­stjóra teld­ist til skatt­skyldra hlunn­inda vegna ákvæða í lögum um Þing­far­ar­kaup þar að lút­andi. Björn Leví Gunn­ars­son á hrós skilið fyrir bar­áttu sína í þessum efnum. Hans bar­átta hefur fyrst og fremst beinst að greiðslum til þing­manna almennt. Og sú bar­átta hefur skilað auknu gagn­sæi og örugg­lega tals­vert betri með­ferð á opin­beru fé,“ segir Þor­steinn.


„Al­var­leg­ur leki“ úr for­sæt­is­nefnd

Í frétt mbl.is kemur fram að Stein­grím­ur J. Sig­fús­son for­seti Alþing­is kann­ist ekki við að for­sæt­is­nefnd hafi rætt það á fundi sín­um að Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata yrði mögu­lega lát­inn sæta ábyrgð sam­kvæmt siða­regl­um fyr­ir að hafa sent er­indi til nefnd­ar­inn­ar um akst­urs­greiðslur til þing­manna.

„Ég kann­ast ekki við hót­un af einu eða neinu tagi. Það er af­bök­un á því sem þarna fór fram,“ seg­ir Stein­grím­ur, sem vill ann­ars ekki ræða þetta mál frek­ar þar sem umræða í við­kvæm­um mál­um í for­sæt­is­nefnd sé trún­aðar­mál. Fund­ar­gerðir for­sæt­is­nefnd­ar eru trún­aðar­mál. Við virð­umst búa í þessu til­viki við mjög al­var­leg­an leka út úr for­sæt­is­nefnd,“ seg­ir hann og kveðst harma það í sam­tali við mbl.is.

Fram kom í til­kynn­ingu frá Pír­öt­um á mánu­dag að óheim­ilt sé sam­kvæmt siða­regl­um að láta Björn Leví sæta ábyrgð í mál­inu. Rök­stutt er­indi um brot á regl­un­um megi aldrei bitna á send­anda þess. „Þessi hót­un get­ur haft al­var­leg fæl­ing­ar­á­hrif og tak­markað veru­lega áhrifa­mátt siða­regln­anna,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Þingmaður óskar eftir að leynd af minnisblaði verði aflétt

Jón Þór Ólafsson þing­maður Pírata segir Stein­grím fara rang­lega með trún­að­ar­skyldur for­sætis­nefndar í fréttum. Þetta kemur fram í tölvu­pósti til fjöl­miðla sem hann sendi í dag.

Þar kemur enn fremur fram að hann hafi óskað eftir minn­is­blaði frá skrif­stofu Alþingis um „Trún­að­ar­skyldur for­sætis­nefnd­ar­manna“ í árs­byrjun 2017. Það minn­is­blað sýni svart á hvítu að Stein­grímur fari með rangt mál.

Jón Þór hefur því sent for­seta Alþingis póst þar sem hann óskar eftir því að hann aflétti leynd af því minn­is­blaði og birti það opin­ber­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár