Lýsa upp ómannúðlegar hvalveiðar

Dáleiðandi fagurt en líka ögrandi listaverk birtist áhorf­endum á horni Laugavegs og Banka­strætis í síðustu viku og lýsti upp kaldan gráma. Þar stóð Högni Egilsson í hópi áhorfenda og blaða­maður tók hann tali.

Listamennirnir Högni Egilsson og Owen Hindley fyrir framan verkið sem þeir sköpuðu, en þar er hljóði, tónlist og myndverki er varpað upp í opnu rými. Verkið vekur fólk til umhugsunar um lífríki jarðar. Ljósmynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson.
Lista­menn­irnir Högni Egilsson og Owen Hindley fyrir framan verkið sem þeir sköp­uðu, en þar er hljóði, tón­list og mynd­verki er varpað upp í opnu rými. Verkið vekur fólk til umhugs­unar um líf­ríki jarðar. Ljósmynd: Jóhannes Kr. Krist­jáns­son.

„Við Owen Hindley sköpuðum verk þar sem hljóði, tónlist og myndverki er varpað upp í opnu rými,“ segir tónlistar­maðurinn Högni Egilsson. En fyrir þá sem ekki til þekkja þá er Owen Hindley myndlistar­maður sem vinnur með nýmiðlun; tvívíð myndverk, hljóð, mynd og tónlist.

Högni segir þá hafa gert verkið til að vera í almanna­rými.

„Og þetta er tuttugu mínútna langt verk sem er hálfgerð dáleiðsla, eða hugleiðsla.“

Hann segir það hverfast um hið ógnvæn­lega í manninum og hvernig hann kemur fram við lífkerfi hafsins og hvalina.

„Við erum að nota myndefni sem var sett um borð í hval­veiðiskipin til að sjá til þess að öllum reglum væri framfylgt um dýra­velferð. Í raun er þetta grunnurinn að banninu í haust um hval­veiðar. Af því að meðferðin á dýrunum var ekki samkvæmt reglum. Þess vegna var myndbands­vélum komið fyrir í skipin …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár