Lífeyrissjóðirnir umsvifamiklir á hlutabréfamarkaði í mars

Svo virð­ist sem líf­eyr­is­sjóð­irnir hafi fjár­fest fyrir tugi millj­arða króna í inn­lendum hluta­bréfum í mars, ef eignir þeirra eru bornar saman við vísi­tölu Kaup­hall­ar­innar.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir virð­ast hafa fjár­fest fyrir 68 millj­arða króna í inn­lendum hluta­bréfum í mars, ef litið er á breyt­ingar á virði þeirra umfram breyt­ingu í vísi­tölu hluta­bréfa. Þetta er mesti mis­mun­ur­inn milli þessa tveggja stærða milli mán­aða. Þetta kemur fram ef tölur Seðla­bank­ans um eignir líf­eyr­is­sjóð­anna eru bornar saman við vísi­tölu Kaup­hall­ar­innar.

Þar sem til­tölu­lega lítil breyt­ing hefur verið á fjár­fest­ingum íslenskra líf­eyr­is­sjóða inn­an­lands milli mán­aða hefur eign þeirra í inn­lendum hluta­bréfum hald­ist í hendur við vísi­tölu kaup­hall­ar­innar. Þetta sést á mynd hér að neðan, sem sýnir þróun beggja stærða frá árs­byrjun 2018.

Í mars var hins vegar mik­ill munur, en þá lækk­aði virði hluta­bréfa þeirra um 4 pró­sent á meðan vísi­tala Kaup­hall­ar­innar lækk­aði um 17 pró­sent. Þetta gefur til kynna að líf­eyr­is­sjóð­irnir hafi fjár­fest tölu­vert í íslenskum hluta­bréfum í mán­uð­inum.

68 milljarða fjárfesting í mars

Ef gert er ráð fyrir að eigna­safn líf­eyr­is­sjóð­anna hafi fylgt vísi­tölu Kaup­hall­ar­innar í mars má því ætla að sjóð­irnir hafi fjár­fest í íslenskum félögum fyrir um 68 millj­arða íslenskra króna í inn­lendum bréfum í mars. Breyt­ingin var þó nær engin í maí og apríl, en í júní og júlí virð­ast þeir hafa selt hluti í inn­lendum fyr­ir­tækjum fyrir um 38 millj­arða króna, ef sömu for­sendur eru not­aðar.

Mis­mun­ur­inn á milli breyt­ingu eigna líf­eyr­is­sjóð­anna í íslenskum hluta­bréfum og vísi­tölu kaup­hall­ar­innar hefur ekki mælst jafn­mik­ill í að minnsta kosti tíu ár, ef tekið er til­lit til magns inn­lendra eigna líf­eyr­is­sjóð­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár