Aukin framlög til heilbrigðismála og mun minni halli á ríkissjóði

Stefnt er að því að reka ríkissjóð með 169 milljarða króna halla á næsta ári en aukið fjármagn verður sett í mála­flokka eins og heil­brigð­ismál og lofts­lagsmál. Fjár­laga­frumvarp ríkis­stjórnarinnar sem mynduð var um helgina var kynnt í dag.

Verulegur hallarekstur en þó minnkandi
Veru­legur halla­rekstur en þó minnk­andi Rík­is­sjóður verður rek­inn með tæp­lega 170 millj­arða króna halla á næsta ári, að því er kemur fram í fjár­laga­frum­varpi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Auka á framlög til heilbrigðis­mála um 16,3 milljarða á næsta ári og fara þeir meðal annars í að fjölga hágæslu­rýmum um sex, endur­hæfinga­rýmum um þrjátíu og koma á fót sérstakri farsóttar­deild í Fossvogi. Rúmir fimm milljarðar eiga svo að fara í byggingu hjúkrunar­heimila.

Þetta kemur fram í kynningu fjármála­ráðuneytisins á nýframlögðu fjár­laga­frumvarpi ríkis­stjórnarinnar. Heildar­útgjöld ríkisins á næsta ári nema 1.100 milljörðum króna samkvæmt frum­varpinu. 

Heilbrigðismál eru enn sem áður lang­stærsti útgjalda­liður ríkisins, samkvæmt frum­varpinu. Gert er ráð fyrir að 300 milljarðar fari í mála­flokkinn á næsta ári. Þar af fara tæpir 84 milljarðar í Land­spítalann. Útgjöld til heilbrigðis­mála nema tæpum 866 þúsund krónum á mann, sem er meira en tvöfalt hærra en í næsta málaflokk, málefni aldraðra, sem nema 274 þúsund krónum á hvern einstakling. 

Þó tekjurnar séu hærri en stjórn­völd höfðu áður búist við, um 955 milljarðar króna, verður ríkis­sjóður rekinn með meira en 168 milljarða króna halla. Mestar tekjur, eða 290 milljarðar, koma úr virðis­aukaskatts­kerfinu, 218 milljarðar fást með sköttum af tekjum einstaklinga og 107 milljarðar vegna tryggingar­gjalda. Fjármagns­tekju­skattur skilar 32 milljörðum, samkvæmt yfirliti fjármála­ráðuneytisins.

Halli ríkis­sjóðs verður meðal annars nýttur til að hækka framlög til loftslags­mála um einn milljarð króna, en mála­flokkurinn var kynntur sem sérstakt áherslumál ríkis­stjórnarinnar. Verða framlög til mála­flokksins þrettán milljarðar á næsta ári, samkvæmt frum­varpinu. Af þessum milljörðum eru 600 milljónir ætlaðar til að hraða orskuskiptum í samgöngum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár