Snapchat komið með viðskiptamódel - byrja að birta auglýsingar

Samfélags­miðillinn Snapchat, sem býður upp á sjálfs­eyðandi örmynd­skilaboð, hefur tilkynnt notendum sínum í Banda­ríkjunum, að þeir megi eiga von á því að fara að sjá fleiri auglýsingar í "recent updates" hluta forritsins á næstunni. Snapchat birti einmitt fyrstu auglýsinguna í forritinu um helgina. "Þetta verður skrítin tilfinning til að byrja með, en við höfum ákveðið að stíga þetta skref" segir Snapchat í blogg­færslu, þar sem fyrir­tækið útskýrir af hverju það hefur látið undan markaðs­öflunum. Vefmiðillinn Quartz segir frá málinu.

Í áður­nefndri blogg­færslu Snapchat segir: "Bestu auglýsingarnar segja þér eitthvað meira um hluti sem þú hefur áhuga á. Sum fyrirtæki eyða miklum tíma í að safna upplýsingum um notendur sína, til að komast að áhuga­málum þeirra. Þessi vara sem við erum að láta frá okkur er mikið einfaldari. Auglýsing mun af og til birtast í "Recent Updates" hlutanum þínum, og þú ræður hvort þú horfir á hana eða ekki. Ekkert stórmál, hún fer þegar þú ert búinn að horfa á hana, eða eftir 24 klukku­stundir, eins í My Story."


Snapchat ætlar ekki að birta auglýsingar í persónu­lega samskipta­hlutanum, þar sem fólk skiptist á "snöppum," eða spjallar. "Það væri bara dónalegt," eins og fyrir­tækið orðar það í blogg­færslunni fyrr­greindu.


Loks segir í færslunni: "Skiljanlega, vill fólk vita af hverju við erum að kynna auglýsingar til leiks í þjónustu okkar. Svarið kemur vafalaust fáum á óvart: við þurfum að græða pening." Í blogg­færslunni lofar samfélags­miðillinn að nota peninganna sem það þénar til að kynna nýjar vörur fyrir notendum sínum.


Um hund­rað millj­ónir ein­stak­linga hafa nið­ur­halað Snapchat - smá­forrit­inu á heims­vísu frá því að því var hleypt af stokk­unum fyrir tveimur árum, en um 70 pró­sent þeirra eru konur. Not­end­urnir senda um 400 milljón "snaptjött" á milli sín dag­lega, en um 71 pró­sent not­enda Snapchat eru undir 25 ára.

Eigendur Snapchat höfnuðu kaup­tilboði Facebook í snjall­forritið í lok síðasta árs, sem hljóðaði upp á þrjá milljarða Bandaríkja­dala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár