Konum með háskólamenntun fjölgar hraðar en körlum

Konum með háskóla­menntun á aldrinum 25 til 64 ára hefur fjölgað hraðar en körlum frá árinu 2003.

Konum með háskóla­menntun á aldrinum 25 til 64 ára hefur fjölgað hraðar en körlum frá árinu 2003. Á síðastliðnum 14 árum hefur konum með háskóla­menntun fjölgað um rúm 20 prósentu­stig og var um helmingur kvenna á aldrinum 25 til 64 ára með háskóla­menntun árið 2017.

Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar í dag.

Jafnframt segir að á sama tímabili hafi körlum með háskóla­menntun fjölgað um tæplega 10 prósentu­stig og hafi tæplega 35 prósent karla á aldrinum 25 til 64 ára verið með háskóla­menntun árið 2017. „Hlutfall háskóla­menntaðra var hæst í aldurs­hópnum 30 til 49 ára, 39 prósent hjá körlum en tæp 60 prósent hjá konum. Hins vegar voru nærri tvöfalt fleiri karlar en konur á aldrinum 25 til 64 ára með doktors­próf, 1.400 karlar á móti 800 konum.“

Í frétt Hagstofunnar kemur fram að háskóla­menntuðum lands­mönnum á aldrinum 25 til 64 ára hafi fjölgað um 14,7 prósentu­stig frá árinu 2003 en 42,4 prósent íbúa í þessum aldurs­hópi höfðu lokið háskóla­menntun árið 2017, alls 73.600.

Á sama tíma fækkaði þeim sem eingöngu höfðu lokið grunn­menntun um rúmlega 11 prósentu­stig og voru þeir um 39.700 árið 2017, tæplega 23 prósent íbúa á aldrinum 25 til 64 ára. Hægari breytingar voru á fjölda þeirra sem eingöngu höfðu lokið starfs- og framhalds­menntun en fjöldinn hefur verið á bilinu 35 til 39 prósent íbúa á aldrinum 25 til 64 ára frá árinu 2003.

Atvinnuþátttaka eykst með meiri menntun

Menntunar­stig íbúa á lands­byggðinni var talsvert lægra, samkvæmt Hagstofunni, en íbúa á höfuð­borgar­svæðinu árið 2017, líkt og fyrri ár. Tæplega 32 prósent íbúa á lands­byggðinni á aldrinum 25 til 64 ára höfðu eingöngu lokið grunn­menntun og var það næstum tvöfalt hærra hlutfall en á höfuð­borgar­svæðinu, sem var 17,5 prósent.

Þróunin á lands­byggðinni er þó sú sama og á höfuð­borgar­svæðinu, þar sem sífellt fleiri sækja sér háskóla­menntun. Mestur munur eftir búsetu í aldurs­hópnum 25 til 64 ára var á meðal háskóla­menntaðra karla en þeir voru rúmlega 43 prósent íbúa á höfuð­borgar­svæðinu en tæplega 20 prósent íbúa á lands­byggðinni.

Atvinnu­þátttaka var mest á meðal háskóla­menntaðra einstaklinga í aldurs­hópnum 25 til 64 ára, tæplega 95 prósent árið 2017. Meðal þeirra sem eingöngu höfðu lokið starfs- og framhalds­menntun var atvinnu­þátttakan rúmlega 91 prósent en minnst var hún á meðal þeirra sem eingöngu höfðu lokið grunn­menntun, tæplega 79 prósent. Atvinnu­leysi var mest hjá konum sem eingöngu höfðu lokið starfs- og framhalds­menntun, 2,3 prósent. Lægst var atvinnu­leysið meðal kvenna sem eingöngu höfðu lokið grunn­menntun, 1,3 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár