Skatturinn ósammála ráðherra um vandamálið

Íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sitja uppi með kostnað vegna end­ur­vinnslu á fernum þar sem gjaldið sem á að standa undir henni hefur ekki verið inn­heimt. Skatt­ur­inn segir laga­stoð skorta til að þrepa­skipta úrvinnslu­gjaldi á fernur, en ráð­herra hefur bent á tækni­legar hindr­anir í tolla­kerf­inu.

Ólík afstaða
Ólík afstaða Jóhann Páll Jóhanns­son umhverf­is­ráð­herra hefur bent á tækni­legar hindr­anir við inn­heimtu þrepa­skipts úrvinnslu­gjalds á fernur. Skatt­ur­inn segir laga­stoð skorta. Mynd: Golli
Upplestur fyrir áskrifendur 03:04 · Gervigreind les með rödd Nonna.

Skatt­ur­inn hafnar því að tækni­legar hindr­anir í tolla­kerfi stofn­un­ar­innar standi í vegi fyrir þrepa­skiptu úrvinnslu­gjaldi á umbúðir á borð við fernur. Að sögn stofn­un­ar­innar skortir laga­stoð til að inn­heimta gjald sem mið­ast við raun­veru­legan kostnað við end­ur­vinnslu fern­anna.

Jóhann Páll Jóhanns­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, sagði hins vegar í nýlegri umfjöllun Heim­ild­ar­innar að tækni­legar hindr­anir í tolla­kerfi Skatts­ins hefðu komið í veg fyrir þrepa­skipt­ing­una. Úrvinnslu­gjöld eiga að standa undir kostn­aði við úrvinnslu umbúða. Aðrar umbúðir sem not­aðar eru á Íslandi bera gjald sem dugar fyrir end­ur­vinnslu þeirra, en ekki fernur.

Í skrif­legu svari segir Skatt­ur­inn að ekki sé hægt að hefja breyt­ingar á toll­skrár­kerf­inu til að inn­heimta rétt úrvinnslu­gjald fyrr en laga­stoðin liggi fyrir. Stofn­unin seg­ist hafa komið því á fram­færi við ráðu­neytið. Fulltrúi Skatts­ins útskýrir afstöðu stofn­un­ar­innar svo:

„Ákvæði 3. gr. núgild­andi laga nr. 162/2002, um úrvinnslu­gjald, eru að mati Skatts­ins ein og sér ófull­nægj­andi …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fernurnar brenna

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár