Lánshæfi Japans versnar - Er landið á barmi djúprar kreppu?

Lánshæfis­mats­fyrirtækið Moody's lækkaði lánshæfis­einkunn ríkis­sjóðs Japans í morgun úr Aa3 í A1, eða um einn flokk. Þetta er fyrsta lækkun á lánshæfis­einkunn hjá stóru lánshæfis­mats­fyrir­tækjunum þremur, Fitch, Standard & Poor's og Moody's, frá því árið 2012. Þá versnuðu horfur hjá mörgum ríkis­sjóðum allt þar til seðla­bankar heimsins gripu til sameiginlegra aðgerða með fjár­innspýtingum til að tryggja aðgengi fyrir­tækja að lánsfé.

Shinzo Abe, forsætis­ráðherra Japans, hefur sagt nýjustu hagtölur í Japan hafa verið „sjokkerandi“ en hagvöxtur á þriðja ársfjórðungi þessa árs var neikvæður um 1,6 prósent saman­borið við sama tímabil í fyrra. Þá hafa örvunar­aðgerðir japanska seðla­bankans ekki skilað árangri.

Megin­ástæða lækkunar á lánshæfi Japans er sú að ekki hefur en verið gripið til trúverðugra aðgerða til þess að bæta stöðu efnahags­mála og tryggja betur fjárhag ríkis­sjóðs, samkvæmt frásögn Wall Street Journal. Fréttirnar hafa valdið titringi á mörkuðum og hafa áhyggjur af því að Japan og jafnvel fleiri ríki séu að leið inn í djúpa kreppu.

Japan er eitt skuldugasta ríki heimsins með opinberar skuldir ríkis­sjóðs upp á um 230 prósent af árlegri lands­framleiðslu landsins samkvæmt upplýsingum Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins. Japanska hagkerfið er það þriðja stærsta í heiminum, á eftir Banda­ríkjunum og Kína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár