GoPro frumkvöðull með fulla vasa fjár - mögnuð myndbönd

Nicholas Woodman, stofnandi GoPro myndavéla­fram­leiðandans og uppfinninga­maður, er með fulla vasa fjár þessa dagana eftir mikla velgengni fyrir­tækisins að undan­förnu. Hann er 39 ára gamall, en stofnaði fyrir­tækið þegar hann var 26 ára.

Woodman er samkvæmt upplýsingum á vef Forbes einn ríkasti ungi fjár­festir Banda­ríkjanna en heildar­eignir hans eru metnar á 3,9 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur ríflega 500 milljörðum króna. Þær eru að mestu bundnar við eigna­hluti hans í GoPro.

Woodman stofnaði GoPro árið 2002 eftir að hafa gert tilraunir með myndavéla­tæknina í brimbretta­ferðum sínum í Kaliforníu. Þar er hann uppalinn og hefur frá unglings­aldri dvalið löngum stundum á strand­lengjunni við hvíta sanda ríkisins.

Photo of the Day! Winter dirt jumping. Photo by @dirt_it_more.

A photo posted by gopro (@gopro) on Feb 4, 2015 at 10:00am PST

Síðan þá hefur mikið runnið til sjávar, og mikill vöxtur einkennt hvert einasta starfsár GoPro. Heildar­tekjur GoPro á síðasta ári voru um 1,2 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 150 milljörðum króna, og hefur hagnaður.

Myndavéla­tæknin er sérstak­lega vinsæl meðal útvistar­fólks, t.d. brimbretta­kappa, hjólreiða­manna, kafara og þátt­takenda í mótorsporti.

https://www.youtube.com/watch?v=gwuLVLwMjuA

https://www.youtube.com/watch?v=D4iU-EOJYK8

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár