Ríkið greiðir uppsagnarfrest og framlengir hlutabætur

Hluta­bótaleiðin verður framlengd út júní í núverandi mynd og síðan í breyttri mynd út ágúst. Fyrirtæki fá stuðning frá ríkinu til að greiða atvinnu­leysis­bætur og þeim verður gert auðveldara fyrir að endur­skipuleggja sig fjárhags­lega. Þetta er meðal þeirra leiða sem ríkis­stjórnin kynnti á blaðamanna­fundi nú í hádeginu til að mæta vanda þeirra fyrir­tækja sem hafa orðið fyrir miklu tekjutapi vegna kóróna­veiru­faraldursins.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra Hún sagði á fund­inum að hluta­bóta­leiðin væri mik­il­væg­asta aðgerðin sem hægt hefði verið að ráð­ast í. Mynd: RÚV

Fyrirtæki fá stuðning frá ríkinu til að greiða atvinnu­leysis­bætur og gildis­tími hluta­bótanna verður fram­lengdur út júní í núverandi mynd og síðan í breyttri mynd út ágúst. Þetta er meðal þeirra leiða sem ríkis­stjórnin kynnti á blaðamanna­fundi nú í hádeginu til að mæta vanda þeirra fyrir­tækja sem hafa orðið fyrir miklu tekjutapi vegna kóróna­veiru­faraldursins. Þá fá fyrirtæki fá stuðning frá ríkinu til að greiða atvinnu­leysis­bætur. 

Aðgerðirnar voru ræddar á fundi ríkis­stjórnarinnar í morgun. Þetta er þriðji aðgerða­pakkinn sem kynntur er. Sá síðasti, sem kynntur var í síðustu viku, var talsvert gagn­rýndur, einkum af aðilum í ferða­þjónustu sem töldu ekki nóg að gert.

„Það er algerlega ljóst að þetta úrræði hefur nýst gríðar­lega vel,“ sagði Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra  um hluta­bótaúrræðið er hún kynnti aðgerðirnar, en  35.000 launþegar hafa nýtt sér úrræðið. „Þetta er mikil­vægasta aðgerðin sem við hefðum getað ráðist í, “ sagði Katrín enn fremur.

„Þetta er mikil­vægasta aðgerðin sem við hefðum getað ráðist í“

Hún sagði að af þessum 35.000 væru 14.000 í ferða­tengdum starfs­greinum. Núverandi fyrir­komulag á hluta­bóta­leiðinni, sem átti að gilda út maí, verður framlengt um mánuð eða út júní. Þá verður fyrir­komulagi þess breytt þannig að úrræðið nær yfir fólk sem er í 50% starfi hið minnsta, í stað 25% nú, og þannig verði það út ágúst. „Við munum líka setja nánari skilyrði fyrir úrræðinu,“ sagði Katrín.

Aðstoð við fjárhagslega endurskipulagningu

Aðgerð númer tvö sem kynnt var á fundinum var að fyrir­tækjum verður gert auðveldara fyrir að endur­skipuleggja sig fjárhags­lega. Byggt verður á núgildandi grunn­reglum en breytingar miða að því að fyrirtæki geti komist í skjól á einfaldan hátt á meðan verið er að meta stöðu þeirra og uns meiri vissa fæst um framtíðar­horfur. Breytingar lúta meðal annars að skilyrðum fjárhagslegrar endur­skipulagningar, beiðni og umfjöllun um hana, tíma­frestum, heimildum til ráðstafana og riftunar- og vanefnda­heimildum viðsemjenda.

Aðstoð við að greiða uppsagnarfrest

Þriðja aðgerðin felur í sér stuðning til fyrir­tækja til að greiða starfs­fólki þriggja mánaða uppsagnar­frest og orlof. Stuðningurinn verður að hámarki 633.000 krónur á mánuði og verður takmarkaður við fyrirtæki sem hafa misst 75%  tekna sinna eða meira. Tilgangur þessa er að tryggja réttindi launa­fólks og forða gjald­þrotum eins og kostur er. Hámarks­hlutfall stuðnings ríkisins verður 85%. 

Forsætis­ráðherra sagði að áætlað væri að um fjórðungur fyrir­tækja hefði orðið fyrir slíku tekjutapi. Þá muni starfs­menn eiga forgang til starfs þegar starfsemi hefst að nýju og halda tilteknum áunnum réttindum. Sett verði nánari skilyrði, til að mynda um rekstrar­hæfi fyrir­tækis, fyrir aðild að þessu úrræði og um endur­kröfurétt. Leiðin er í boði frá 1. maí til 30. september. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

FréttirHlutabótaleiðin

Matvæla­fyrirtæki með eignar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bótaleiðina

Matvæla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eignarhalds­félags­félags á lágskatta­svæðinu Möltu sem sagt er hafa öll einkenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bótaleiðina. Framkvæmda­stjórinn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eignar­haldið á Möltu en segir að engin skilyrði vegna eignar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leiðarinnar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár