Kínverskur efnahagur sýnir enn skýrari veikleikamerki

Kínverska hagkerfið sýndi hagvöxt upp á tæplega sjö prósent á þriðja ársfjórðungi, sem er umtals­vert minna en vonir stóðu til um. Þetta er í fyrsta skipti síðan árið 2009, þegar fjármála­kreppan á heims­mörkuðum hafði afgerandi áhrif á gang mála, sem hagvöxtur fer niður fyrir sjö prósent á þriðja ársfjórðungi í Kína, segir á vef Wall Street Journal.

Þessar nýjustu upplýsingar um stöðu mála í Kína eru taldar vera vísbending um að gangur efnahags­mála í heiminum sé viðkvæmur og geti farið versnandi á næstunni.

Hagvöxturinn mældist um 6,8 prósent, en markmið stjórn­valda er að halda hagvextinum í kringum sjö prósent. Vegna þess hve stærðirnar eru miklar í þessu fjölmennasta ríki heimsins, með 1,4 milljarða íbúa, þá telst það mikið frávik ef hagvöxtur er 0,2 prósentu­stigum minni en ráð var fyrir gert.

Efasemdir hafa hins vegar verið uppi um það í Banda­ríkjunum sérstak­lega, að greiningar og mælingar stjórn­valda í Kína, séu nægilega nákvæmar.

Hagvöxtur mældist um sjö prósent í Kína á fyrri helmingi ársins, samkvæmt opinberum hagtölum stjórn­valda. Skoðana­könnun á meðal 64 hagfræðinga sem gegna ábyrgðar­stöðum í Banda­ríkjunum sýndi að 96 prósent aðspurðra voru á því að þetta væru ekki réttar tölur. Hagvöxturinn væri mun minni, og munaði líklega á bilinu eins til tveggja prósentu­stiga. Þegar Kína er annars vegar þá er hvert prósentu­stig í hagvexti gríðar­lega mikil hagstærð, svo það er óhætt að segja að þessi hagfræðingar treysti ekki stjórn­völdum í Kína.


What do U.S. economists think of official China statistics? http://t.co/nXPso01Opm by @jeffsparshott pic.twitter.com/061fXwAJ3B


— Wall Street Journal (@WSJ) September 11, 2015

Nýjustu opinberu hagtölur í Kína, sem hafa ekki verið véfengdar með jafn afgerandi hætti og hagvaxtar­tölurnar, sýna augljósa breytingu í kínverska hagkerfinu, en útflutningur hefur dregist 5,5 prósent á þessu ári miðað við árið á undan, og innflutningur um fjórtán prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár