95 prósent lækna í Aleppo hafa flúið, dáið eða verið fangelsaðir

Einn læknir er á hverja sjö þúsund íbúa, og enginn geðlæknir eða sálfræðingur er eftir

Tveir læknar flytja særða konu milli staða í Aleppo fyrir þremur árum síðan.
Tveir læknar flytja særða konu milli staða í Aleppo fyrir þremur árum síðan. Mynd: EPA

Einungis 50 læknar og 200 hjúkrunar­fræðingar eru nú í Aleppo, stærstu borg Sýrlands, samkvæmt nýrri skýrslu mann­réttinda­samtaka lækna (Physicians for Human Rights), sem Newsweek greinir frá. Eingöngu er einn tauga­læknir, einn hjarta­læknir og einn kvenkyns kven­sjúkdóma­læknir í borginni samkvæmt rann­sókninni, og hvorki geðlækn né sálfræðing að finna.

Árið 2010 var einn læknir fyrir hverja 800 einstaklinga í borginni, en nú er hlut­fallið einn læknir á hverja 7.000 einstaklinga. Fólki í borginni hefur á sama tíma fækkað úr tveimur milljónum árið 2010 í rúmlega 300.000 í ár. Til saman­burðar var hlutfall lækna við einstaklinga einn læknir á tæplega 300 einstaklinga á Íslandi árið 2011.

Frá því að stríðið braust út í Sýrlandi fyrir fjórum árum síðan hafa 95 prósent lækna flúið frá Aleppo, verið drepnir eða verið fangelsaðir, samkvæmt skýrslunni. Innan við þriðjungur af spítölum borgarinnar eru enn opnir, enda hafa stjórn­völd herjað á þá með loft­árásum og öðrum sprengju­árásum meira en 45 sinnum, segja læknarnir.

„Við sjáum þetta sem hryllilegt fordæmi fyrir það sem gæti orðið mjög áhrifa­ríkt vopn í stríðs­rekstri,“ segir Michele Heisler, einn höfunda skýrslunnar og prófessor við háskólann í Michigan. „Þegar farið er að herja á spítala svo að fólk geti hvorki veitt né notið heilbrigðis­þjónustu er það lævísk leið til að sá skelfingu.“

Flestar árásir hafa verið gerðar á spítala í Aleppo, en árásir á spítala eru engu að síður vandamál um allt Sýrland og 686 heilbrigðis­starfsmenn hafa verið drepnir frá því í mars 2011.

Við framkvæmd skýrslunnar var rætt við 24 heilbrigðis­starfsmenn í Sýrlandi auk starfs­fólks á öllum 10 spítölunum sem eru opnir. Heisler segir við Newsweek að það geti verið að fleiri læknar séu í borginni, en þori ekki að tala um það. Samkvæmt vitnis­burði einhverra búi þeir á spítalanum þar sem þörfin sé sífelld, og að margir þurfi að framkvæma aðgerðir sem þeir hafi aldrei áður gert. „Fyrir mörg okkar er hugmyndin um að sérstak­lega sé reynt að sækja að fólki sem leitar heilbrigðis­þjónustu og þeim sem eiga að vera að hjálpa og heila, það er ákveðinn hryllingur í því. Það er mjög yfir­þyrmandi leið til að skapa ótta og getur látið fólk gefa upp alla von.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár