Verð á eggjum rýkur upp í Bandaríkjunum

Verð á eggum hefur hækkað hratt að undan­förnu í verslunum í Banda­ríkjunum. Hefð­bundinn eggja­bakki hækkaði um 14,5 prósent í síðasta mánuði og kostar nú að meðaltali 2,94 Bandaríkja­dali, að því er fram kemur á vef Quartz. Sé verðið leiðrétt fyrir verðbólgu, þá hefur verðið á eggjum ekki verið svona hátt síðan í febrúar 1984. Það þýðir að stór hluti Banda­ríkjanna, eða um 42 prósent lands­manna, hefur ekki séð dýrari egg í búðum.

Ástæðuna fyrir hækkuninni má meðal annars rekja til þess að framboð á eggjum hefur stórkost­lega dregist saman þar sem yfirvöld eru að reyna að ná tökum á útbreiðslu fugla­flensu hjá eggja­fram­leiðendum, sem hefur leikið mörg eggjabú grátt. Fimmtíu milljónir eggja voru innkölluð úr sölu í júlí, sökum þessa, og hefur það ekki gerst í meira en áratug, að innkalla hafi þurft svo mikið af eggjum.

Á sama tíma og eftir­spurn eftir eggjum er stöðug í verslunum, og framboð hefur dregist skyndi­lega dregist saman, þá hefur afleiðing birst í hærra verði til neytenda, að sögn Quartz.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár