Bækur eru hversdagsleg nauðsynjavara

Samtímis því að Sverrir Norland og Cerise Fontaine eignuðust dótturina Ölmu fæddist hugmyndin um að reka lítið bóka­forlag á Íslandi, meðal annars svo þau gætu þýtt á íslensku eftirlætis­barna­bækurnar sínar og lesið þær fyrir dóttur sína. Forlagið nefndu þau AM forlag og á vegum þess eru nýkomnar út þrjár bækur eftir Tomi Ungerer.

Sverrir og Cerise
Sverrir og Cerise Þau eru nýflutt til Íslands, eftir ára­langa búsetu erlendis, ásamt Ölmu dóttur sinni. Mynd: Davíð Þór

Þegar þau Sverrir Norland og Cerise Fontaine áttu von á fyrsta barni sínu fóru þau að skoða barna­bækur markvisst, ekki síst af þeirri ástæðu að þau voru búsett í New York, fjarri báðum móður­málum barnsins, frönsku og íslensku. Þau tóku fljótlega eftir því að af nógu var að taka af fallegum og áhuga­verðum gæðabókum á frönsku og ensku sem þau áttu eftir að geta lesið fyrir barnið. Þeim fannst minna framboð af slíkum barna­bókum á íslensku. „Það eru vissulega margir að gefa út fallegar bækur hér líka, en okkur fannst að við gætum einnig lagt okkar lóð á vogar­skálarnar,“ segir Sverrir. 

Þau höfðu hins vegar á þeirri stundu ekki endilega hug á að stofna bóka­útgáfu, sem þó varð raunin um tveimur árum síðar. „Þetta var ekki endilega draumur hjá okkur, að reka okkar eigin bóka­útgáfu, en á sama tíma var það mjög rökrétt skref, fyrir okkur bæði. Ég var …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár