Var öryggisvörður í Foot Locker en endaði í Super Bowl

Chris Matthews átti góðan leik fyrir Seattle Seahawks í gær í leiknum um Ofur­skálina, Super Bowl, en New England Patriots stóð engu að síður uppi sem sigurvegari, 28-24, eftir jafnan og spennandi leik, einkum framan af.

Matthews greip sendingar í fjögur skipti í erfiðri aðstöðu og var einn þeirra sem kom til greina sem maður leiksins áður en leik­stjórn­andinn frábæri, Tom Brady, tók til sinna ráða og stýrði sínu liði til sigurs, með vel útfærðum sóknum gegn bestu vörn í sögu NFL, múrnum hjá Seattle Seahawks.

Saga Matthews er með nokkrum ólíkindum, en hún var rakin í umfjöllun Sports Illustrated í fyrra. Hann hætti í NFL árið 2011 eftir að Cleveland Browns skar hann niður úr leik­mannahópi sínum. Hann freistaði gæfunnar í mun lélegri deild í Kanada, áður en hann hætti alveg að æfa íþróttina.

Hann ákvað að byrja nýtt líf og réð sig sem öryggis­vörð í skóverslun Foot Locker-keðjunnar. Dag einn í fyrra hringdi starfs­maður Seattle Seahawks í hann og bað hann um að koma á æfingu hjá liðinu, þar sem þjálf­arinn teldi að eigin­leikar hans geti fallið vel að leik liðsins. Hann geti komið með næsta flugi. Matthews hikaði þá, og sagðist ekki vita hvort hann gæti komið, þar sem hann þyrfti að mæta til vinnu. Umboðs­maður hans fékk síðan fregnir af málinu, og brást við, alveg óður. „Ertu gjör­samlega galinn? Taktu til dótið þitt og farðu!“ sagði hann ákveðinn.

FOOT_LOCKER
FOOT_LOCKER

Hann náði fluginu og komst að lokum í æfinga­hópinn hjá liðinu. Hann toppaði síðan ótrúlega endurkomu sína í NFL með frábærum leik í gær - þó það hafi ekki dugað til sigurs.

https://www.youtube.com/watch?v=971F4OqnZuw

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár